föstudagur, júlí 02, 2004

Ég fer í fríið...

...í fyrramálið á svona líka ókristilegum tíma(eins og systir mín myndi orða það). ÉG verð í háloftunum rétt eftir 7:30 í fyrramálið sem þýðir að fólk þarf að vakna um 4-5 leytið til að vera mætt á staðinn á réttum tíma...en hvað leggur maður ekki á sig til að komast til útlanda...ja og Troels, því ég veit nefnilega ekki hversu hress og skemmtileg konan verður SVONA snemma dags....vonum bara það besta..hehe;)

Jæja þannig að netnördinn ég kveð í bili og mun að öllum líkindum heilsa upp á ykkur næst í nýju fínu tölvunni minni í landi Dananna.

Svo er hérna shout out til Siggu soulsista sem lenti í léttvægum hremmingum hérna um daginn. Props fyrir góða tæklun....stay safe man;)

Hafið það gott alle sammen*

Engin ummæli: