miðvikudagur, febrúar 14, 2007

Valentines smalentines...



Nú er þessi ofur ameríski "kærlighedsdagur" búinn...sem er ágætt!

Það sem betra er er að konudagurinn er á sunnudaginn...jeij!
-og bolludagurinn á mánudaginn....hversu gott getur lífið verið!!??

Allir karlar að taka sig á og gera e-ð sniðugt fyrir dömuna sína...heyr heyr!

Þær sem ekki eru með karl í eftirdragi eiga að vera góðar við sig á sunnudaginn og splæsa á sig eins og einni dollu af Ben and jerry´s eða álíka lúxusi....

Bara smá reminder fyri þá sem þurfa!;)

sunnudagur, febrúar 11, 2007

Glerblasturs-myndir


Hver segir að stórar blásturskinnar séu ekki töff? Þetta er ekkert smá erfitt í byrjun...eins og að læra á trompet!


Ia(Cecilia) vinkona mín í skólanum og annar sví sem aðstoðaði okkur í gler-handtökunum


Verið að blása og rúlla glerkúlu sem seinna varð snafsa-glas


Ég reyni hér að sýna fagmanneg handtök á mörghundruð gráðu heitum glerklumpi!

Þar hafiði það...þetta var stuð en ég held ég ætli samt ekki að leggja það fyrir mig að verða glerlistakona. Aðrir mega sjá um það.

Have a næs mondei!

fimmtudagur, febrúar 08, 2007

Þvaður og blaður


...nýtt verkefni í skólanum. Hönnun og markaðssetning á nýju merki/útliti fyrir strigaskó.
Allt að gerast...ég er þessa dagana að kynna mér þennan skemmtilega heim enn frekar og hef strax komist að því að úti í heimi finnst fjöldinn allur af "sneaker-freakers" s.s áhugamenn/konur og safnarar sem lifa fyrir hina og þessa limited edition af hinum og þessum strigaskóm. Ábyggilega skemmtilegt, en afar dýrt, áhugamál.....þar sem verðin á þessum skóm geta verið rosaleg.

Fékk einkunnir í dag fyrir fyrstu önn. Allir sáttir með mig þar svo maður heldur bara ótrauður áfram á sömu braut...

Ég er byrjuð að æfa mig í að prjóna. Kann það alveg, en þarf eitthvað að fínisera það með að læra að prjóna e-ð annað en langa strimla sem enda með því að vera kallaðir treflar því ég kann ekki beint að gera neitt annað. Kannski maður fari bara að læra að pródúsera barnaföt fyrst allir eru svona óléttir þessa dagana;)

Smá súr yfir því að missa af spennandi Vatnó-hittingi í kvöld en þið skemmtið ykkur bara án mín stelpur...þeim mun meira góðgæti fyrir ykkur...haha!

Annars allt gott í Köben

sunnudagur, febrúar 04, 2007

Ymislegt brallað i Köben

...miðvikudagur...prófaði að blása gler og að búa til einhverja klumpa úr gleri...for the first time! Mín ákaflega stolt af klumpunum sínum og svo míní "vasanum"( sem átti að verða staupglas) sem ég blés....ég er bara hetja!!

-fimmtudagur...skólinn byrjaði með tilheyrandi stuði og verkefnum. Fyrsta æfing: að hanna lógó fyrir "vegetarian restaurant" mín á alveg á heimavelli þar:)hehe....fékk TJ minn aftur frá Tjékklandi... fékk fínar gjafir og mikinn þvott eftir fjarveruna:) Mín hæst ánægð með allt saman!

-föstudagur TJ lagðist í bælið vegna veikinda...ég mætti aðeins í skólann og hélt svo heim til að hjúkra sjúklingnum.

-laugardagur...ennþá geisa veikindi og mín þrífur íbúðina ásamt því að vinna í skólaverkefninu. Á meðan ég svo baka súkkulaðiköku fæ ég þá snilldar hugmynd að prófa í fyrsta skipti ever að búa til franska lauksúpu. Nema það að prósessinn tók amk 2 tíma...mæli með að fólk hafi góðan tíma ef það ætlar sér að leggjast í svona verkefni. Hún varð reyndar mega góð og vellukkuð:)
Fór svo í bíó á "Little Miss Sunshine" með Sólveigu og Georgi. Fannst hún alveg snilldar fyndin...mæli með. Svo drekktum við okkur í heitu súkkulaði með vanillu ís á Roberts Coffee á eftir:)

-Sunnudagur.....skólaverkefni...TJ e-ð að hressast....og rólegheit.

Þar hafiði það...rólega helgin mín í hnotskurn

Adios í bili

p.s. engin ábyrgð tekin á stafsetningarvillum í þessum texta!

þriðjudagur, janúar 30, 2007

SNÖKT!

Svoooooo nálægt því!!!!
Ljótu danir!

Aarhus ferðin min....



Matur hjá Leu fyrsta kvöldið


Aros listasafn Aarhus...sýningin sem var í gangi gekk út á að sýna safnið í ljósum logum að kvöldi til.



Flott form á nýja safninu...ferningslagað að utan og allt í bogum og mjúkum línum að innan. Níu hæðir allt í allt. Alveg þess virði að leggja leið sýna þangað.



Horft upp eftir hæðunum. Ólafur Elíasson vann í samkeppni um að fá að hanna e-ð sniðugt fyrir þakið á safninu. Tilaga hans gekk út á að setja hringlaga gang með glerveggjum á toppinn sem gefur manni möguleika á að sjá 360 gráðu útsýni yfir bæinn. Skemmtilegt!



Ég og Guðrún heimsóttum Leu í skólann hennar. Ekki verra að við kennararnir kynntum okkar kennaraháskólann í Aarhus;)



Matarboð hjá Guðrúnu og Ingiber um kvöldið.



Ingiber ávallt hress.



Ég er þarna komin í ferjuna á leiðinni heim...Aarhus fjarska



Iðnvæðingin skreytir bæinn....


Allt í allt snilldar afslöppunar/kúlturferð.....

Handbolti...

...er vinsæll hér í Danmörku.

Afhverju?...af því að þeim gengur vel....alveg eins og Íslandinu.

Leikurinn Danmörk- Ísland í kvöld.

Spennandi!

p.s. er komin heim úr "fríinu" í Århus...myndir komar fljótlega.

p.s.s. áfram Ísland!!!

miðvikudagur, janúar 24, 2007

Ferðahugur!

TJ fer til Tjékklands í snjóbrettaferð á föstudaginn með strákahóp.
Ég vildi gera eitthvað álíka eksótískt...svo ég keypti mér miða með rútu til Jótlands....nánar tiltekið Århus og mun eyða laug, sunn og mánudeginum þar í bæ.
Ég ætla mér að búa hjá Leu vinkonu minni og herbergisfélaga úr höjskólanum og ætlum við að rifja upp gamla tíma og spóka okkur á "strikinu" í århus. Einnig ætla ég að reyna að hafa upp á henni Guðrúnu Rögnu Kennó vinkonu og pína hana til að gera e-ð skemmtilegt með mér;)

Þetta verður villt!

Tjékkland hvað?!!!?

Loksins loksins


Þvottvélin okkar er komin í lag eftir ansi langan tíma!
Sem betur fer er "møntvaskeri" hérna hinu megin við götuna en samt er ekkert betra en að hafa sína eigin vél
Þið getið rétt ímyndað ykkur að í dag er stórþvottsdagur...og ég er hæst ánægð!
Var farin að ganga í fötum sem ég vissi ekki einu sinni að ég ætti...

þriðjudagur, janúar 23, 2007

Hvað eiga stræto og tölvunotkun sameiginlegt...

...bæði vandamál.

Tek sem dæmi tvær fréttir af mbl.is þar sem fjallað var um unglingabræður sem voru með svo mikin uppsteyt, að kalla þurfti til lögreglu, þegar foreldrarnir ætluðu að fara að taka á óhóflegri tölvunotkun þeirra bræðra. KOMMON!!!?!
Það er reyndar ekkert nýtt að tölvunotkun er fíkn nútímans...sem bætist við hinar fyrr þekktu fíknir alkahólisma, eiturlyfja- og fjárhættuspilafíkn. En þegar unglingar eru farnir að veitast að foreldrum sínum vegna þess að þeir eigi að taka til hendinni á heimilinu ...ja eða bara beðnir um að fara út fyrir dyr...þá er sko kominn tími til að taka á málunum fyrr í uppeldinu. Hætta þessu dekri og kenna börnum eins og unnt er að þróa með sér eðlilegar umgengnisvenjur við tölvur og tölvuleikjanotkun...ekki satt!

Ætli það sé komin tölvuleikjadeild inn á Betty Ford center?! Maður bara spyr sig!


Strætó á Akureyri er að gera það gott!
Af hverju er strætó í Rvk ekki að gera það jafn gott? Kannski af því að það er ekki ókeypis í strætó eins og hjá snilldar pólitíkusunum á Akureri. Ok, þeir kalla ca. 400 manns stóraukin farþega fjölda en prósentulega séð er það bara slatti.
Reykjavík ætti svo að reyna þetta...þó það væri ekki nema til að minnka mengunina fyrir litlu sætu borgarbúanna!
Og ef þeir tíma því ekki þá er hugmynd að láta bara aðal leiðirnar vera ókeypis.


Jæja...það bætir og kætir að lesa mbl
Þetta blogg var í boði mbl...ef þið skylduð nú hafa misst af því;)

sunnudagur, janúar 21, 2007

laugardagur, janúar 20, 2007

Áhugavert gler...

Gæti alveg hugsað mér svona vasa eða skálar.

föstudagur, janúar 19, 2007

Gleðilegan þorra...

...ef maður getur óskað fólki þess..það hlýtur bara að vera!

Endilega troðið í ykkur súrsuðu, kæstu og öllu hinu sem fylgir og nartið í smá harðfisk fyrir mig. Einhvernveginn finnst mér yfirleitt vera mikil stemmning í kringum þorrann...þorrablótin og þorramaturinn. Þó myndi ég ekki fyrir mitt litla líf innbyrgða helming þess sem boðið er upp á. Úff...verði ykkur að góðu!

Að allt öðruvísi mat. Hvernig gat ég eiginlega klikkað á því að taka með mér hamborgarasósu og pítusósu??!! Fékk svona sósupar sent með systu í haust...það nottlega löngu búið og hamborgari er auðvitað ekki samur við sig án hamborgarasósu. Treysti mér ekki í að ímynda mér hvernig píta er án pítusósu...
Ferlega get ég verið gleymin, var svona líka búin að skrifa hjá mér að það þyrfti að fjárfesta í svona nauðsynjarvörum í jólafríinu.
Ætli ég verði ekki að reyna að tóra þessa fram á sumar;)
Maður lærir af reynslunni...varð bara að deila þessu með einhverjum!

Góða helgi alle sammen!

miðvikudagur, janúar 17, 2007

Dugnaður á Borupsalle!

Jæja mín skellti sér í bakstur í dag...tvær smákökusortir, vegna skorts á jólabakstri 2006! Og reyndar henti ég í ofninn einni brauðblöndu sem varð líka ansi vellukkuð (hefði varla getað mislukkast). Þetta var einmitt dönsk brauðblanda, nýkomin á markað hér og er á leið inn á íslenskann markað. Ólíkt öðrum brauðmixum er hún gerð úr líffrænt ræktuðum hráefnum og er ferlega sniðug að því leiti að maður bakar það í pakkningunum. Ótrúlega smart gert...hafið augun opin fyrir þessu.
Nóg af auglýsingum...veðrið hér í Köben er ekkert til að hrópa húrra fyrir en lofthitalega séð kvarta ég ekkert að ráði...þar sem hitinn hangir í um 10 gráðum.Það er bar rigningin sem er e-ð að pirra mig.

Nokkrar myndir frá ljósmyndanámskeiðinu.




sunnudagur, janúar 14, 2007

keramik og þesshattar...



Fyrsta vikan í skólanum eftir frí er búin...ég var á verkstæðisnámskeiði sem gerir mér kleift að nota verkstæði,í þessu tilviki keramikverkstæðið, eins mikið og ég vil. Ég lærði meðal annars að renna skálar, vasa og allt sem mér dettur í hug á rennibekk...nú er bara að æfa sig.
Á morgun fer ég í námskeið fyrir ljósmyndaverkstæðið...

Í dag fórum við í skírn. Sonur bróðir TJ var skírður Lucas Christian..

Ekki meir í dag.

mánudagur, janúar 08, 2007

Betra er seint en aldrei!



Þá er maður víst komin aftur til Köben
Fyrsti skóladagur á morgun og hversdagsleikinn fer að rúlla...
Þá er nottlega ekki seinna vænna en að rifja upp yndilsega jólafríið mitt á Íslandinu góða!

-Hélt jól með fjölskyldu minni í nýja húsinu þeirra á Nesinu í fyrsta skipti
-Hélt jól með TJ á íslandi í fyrsta skipti
-Hélt áramót með "stórfjölskyldunni"
-Jólaboð með tilheyrandi skemmtilegheitum og jólamat
-Eyddi tíma með minni einkar frábæru og einstöku fjölskyldu
-Skipulagði og hélt í samráði og samvinnu við fjölskyldu mína stórafmæli móður minnar
-Fór í "nýju"Neslaugina í fyrsta skipti
-Fór í bústaðinn. Grillað og farið í pottinn
-Fór í nýja Ikea
-Reyndi að fara á Bond myndina í bíó
-Það var bæði hist í hádegis-súpu og farið út að borða með góðum vatnalilju-vinkonum
-Hist á kaffihúsi með Kennó vinkonum
-Unnið smávegis í blómabúðinni
-Étið á sig gat alla daga
-Hitti gamla vini/vinkonur sem maður hefur ekki hitt í langan tíma
-Hafði það rosa gott
-Fór á rejúníon með árganginum mínum úr Kvennó...

-ég er ábyggilega að gleyma einhverju mikilvægu og er fólki er velkomið að skamma mig fyrir það

Ástar kveðjur frá Kbh.

(ef einhver er sár yfir að vera ekki með á myndinni er það bara vegna þess að ég á ekki mynd af viðkomandi...eða að það var bara ekki pláss eftir í rammanum.......no hard feelings!)

þriðjudagur, desember 19, 2006

All packed...




...og á leið heim á morgun.
Skólinn búinn í bili. Búið að vera mikið að gera og loksins loksins kemst maður heim í smá jóla-afslöppun(vona ég).

Sjáumst hress!

sunnudagur, desember 17, 2006

Afmælisbarn dagsins...


Til hamingju með daginn Birna mín!!

Bara fáeinir dagar í að ég hitti þig með eitt stykki afmælisgjöf undir hendinni!

Njóttu dagsins eins vel og þú getur..og gangi þér rosa vel í prófinu á morgun!:)

miðvikudagur, desember 13, 2006

Rejunionið



Stelpur!
Hverjar eru búnar að kaupa miða á janúar djammið?!?

mánudagur, desember 11, 2006

Jolaæði!



Þessa dagana er ég með rosalegt jóla-æði fyrir klementínum/mandarínum.
Borða þær á hverjum degi og margar...sem er víst bara jákvætt því þær eru hollari en nammi og svo fylgir þeim svo mikil jólailmur:)

Dagarnir mínir innihalda mikið af íslenskri jólatónlist (í boði gesta seinustu helgar), klementínum, skólaverkefnum og smávegis gjafakaupum þó þau séu næstum komin í hús.

Af hverju er maður ekki búinn að versla allar jólagjafir í byrjun september. Maður er alltaf í sömu tímakrísu(þó hún oft hafi verið verri en í ár) á þessum tíma árs. Kannski er þetta efni í enn eitt nýársheitið....

Annars 9 dagar í heimkomu...ætli maður þurfi ekki fljótlega að sækja rykugu ferðatöskuna upp á háaloft.

laugardagur, desember 09, 2006

Jolastemmningin eykst...




-við ætlum í tivoli í kvöld að fá okkur e-ð fínt að borða með Herði og Önnu. Þar fer kannski eitthvert okkar í tæki, það verða hámaðar í sig nokkrar eplaskífur...mögulega heitt kakó...hver veit...en verður án ef stuð.
Í gær vorum við með góðan mat, köku, spil, jólalög og nammi....extremley kósý bara.
Á morgun verður sunnudagurinn haldinn heilagur sem þýðir að við ætlum í bíltúr með gestina...sýna smá Köben, kíkja í búðir og hafa það enn meira næs. Svo erum við að fara í jólaboð hjá Carlos félaga TJ um kvöldið.
Ströng dagskrá en þó ansi ánægjuleg....ekki heyrirðu mig kvarta!

Jæja nóg um það....finnst ég ekkert skrifa hingað inn nema um át og huggulegheit upp á síðkastið.
Efast þó um það eigi eftir að breytast mikið héðan af...

Bráðum koma blessuð jólin!

fimmtudagur, desember 07, 2006

Pressa fra Icel.Express

Fékk þetta mail í dag:

"Kæra Hildur

Senn líður að brottför þinni til Íslands með Iceland Express. Í þessum pósti höfum við tekið saman nokkur atriði sem gott gæti verið að hafa í huga fyrir ferðina.

Takk fyrir að velja Iceland Express og við vonum að ferðin verði ánægjuleg."


Maður er bara farinn að hlakka til þegar það er komin svona pressa á mann;)

Í dag fáum við gesti sem verða fram á sunnudag. Hörður (L.H.Í skólafélagi TJ´s) og Anna kærasta hans.
Ég efast ekki um að þessi heimsókn eigi eftir að auka enn frekar á jólaskapið.

Annars er þessi vika búin að vera ansi "gestsöm"(nýtt orð) með fólk í mat á hverju kvöldi frá því á sunnudaginn.
Ætti maður kannski að stefna á að opna "Guesthouse" ?...eða erum við kannski þegar búin að því...spurning!

Góða helgi gott fólk

Er að fíla nýja jólalagið með Baggalút....þó að mér dytti aldrei í hug að borða rjúpur um jólin.

miðvikudagur, desember 06, 2006

Niðurtalning!

14 dagar þanga til ég kem heim...can you belive it??
Ég verð að viðurkenna að ég á erfitt með að fatta það.
Finnst þessi tala alltof lág miðað við allt sem ég á að ná að gera fyrir þann dag.
En ég mér líst samt vel á...

Kúlusúkk, hangikjöt og skyr hér kem ég!!

mánudagur, desember 04, 2006

Maður er alltaf i stuði!

Framfarir i þjonustugeiranum...



...ég þurfti að hafa samband við VIS í dag út af tryggingum sem við höfum haft hjá þeim á meðan við bjuggum heima. Ég ætlaði að senda þeim email (eins og venjulega) og fór þessvegna á heimasíðu þeirra til að hafa upp á netfanginu.
Þar blasir við mér hnappurinn sem sýndur er fyrir ofan. "Hvað getur þetta verið" hugsaði ég og auðvitað í forvitni minni klikkaði ég bara og þá poppaði upp þessi fíni "msn" rammi sem sagði mér að bíða eftir að þjónustufulltrúi myndi koma í spjallið.
Þangað mætti einhver kona og ég fékk þjónustu á metttíma og þurfti ekki einu sinni að bíða í röð né að eyða fullt af peningi í millilanda símtal.

Me like....þetta kallar maður sko framfarir!!

sunnudagur, desember 03, 2006

Fyrsti i aðventu..



Búin að vera fín aðventuhelgi...jólabazar og föstudagsbar í skólanum mínum á föstudaginn. Fullt af fínum hlutum til sölu sem nemendur höfðu búið til og góð jólastemmning. Bara mikið stuð, mikið gaman!

Laugardagurinn fór í að þræða búðir...til að finna jólagjafir. Það tókst ágætlega...farið var í City2 verslunarmiðstöðina og risa Ikea. Bæði fínar "búðir" og nóg hægt að versla...en mikið rosalega verður maður þreyttur á að dröslast um á svona stöðum. Hreinlega bara allt of mikið af fólki!

Sunnudagur fór í kósýheit par excelance...kerti, eplaskívur(með engum eplum og eru ekki skífur), teppi, jólapælingar og afslöppun.

Nú eru bara tvö aðventukerti í að ég komi heim í juleferie!!

p.s. Ef einhver tók myndir í afmælinu hennar Drafnar má sá sami endilega senda mér eða pósta þær á blogginu sínu.

Að lokum vil ég segja að ég er mjög fylgjandi þessu og finnst bara asnalegt að það hafi verið gerðar rosa framkvæmdir á þessum veg án þess skipuleggjendur hafi hugsað fram í tímann.


Jóla/jóla kveðja frá moi

laugardagur, desember 02, 2006

Afmælisbarn dagsins...

..er hún Dröfn mín!

25 skemmtileg ár hafa flogið hjá og í kvöld mun hún fagna því með heljarinnar salsa teiti...sem ég kemt EKKI í...búhú...sem þýðir ekkert nachos né tequila handa mér:/

Þar sem ég kemst ekki í kvöld gróf ég upp mynd frá því ég var í afmæli hjá henni fyrir þó nokkrum árum síðan er við í denn gengum í menntaskóla saman...Dröfn þú verður bara að minnast þessa dags og ímynda þér að ég sé á staðnum.

Skemmtið ykkur rosa vel!



Grúppu högg!!:)




Ein auka til svona til að minnast gamalla tíma;)

miðvikudagur, nóvember 29, 2006

mánudagur, nóvember 27, 2006

Haustferð i dönskum skogi...


Its me!!!


Api í trjánum...




svoldið önnur stærð á trjám en heima...;)
Hvað lærði ég að þessari ferð?
1. í þessum skógi er hæst punktur Sjálands...91 m á hæð.
2. það er gott að vera í góðum og háum gúmmístígvelum þegar gengið er um skóg með blautum laufum og drullusvaði...

Lovely!

þriðjudagur, nóvember 21, 2006

Bloggfjarvera

Við TJ vorum svo heppin að fá Hagnaðarfjölskylduna í heimsókn í nokkra daga.
Búið að vera mikið fjör og mikið gaman....og mikið að gerast!
Það kemur ábyggilega fínasta ferðasaga á síðunnar hennar Hörpu svo þið verðið bara að bíða eftir henni;)


Ákvað að henda inn þessu líka fína myndbandi....

miðvikudagur, nóvember 15, 2006

Rakst á fyrir tilviljun...

...útlendingur á íslandi...gaman að lesa!

Danskur humor...



...rakst á þennan danska brandara. Skóladanskan ætti nú að redda ykkur að einhverju leiti gegnum hann;)


-Børnene fik i skolen at vide, da de lærte om Island, at hovederhvervet* er fiskeri. (*aðal atvinnuvegurinn)

"Man betaler faktisk alt med fisk", sagde læreren.

"Det var sørens*, sagde lille Peter. "Sikke nogle sjove parkometre* de må have der oppe."- (*það var árans.....*stöðumæla).

Jolin orðin official! :)



....í dag er sá merkisdagur að ég má löglega byrja að tala um jólin á mínu heimili.
-ég var að velta fyrir mér að skreyta svoldið vel fyrir þessi jól...e-ð í stíl við myndina;)

þriðjudagur, nóvember 14, 2006

Stöndum vörð...



...þetta finnst mér sniðugt.
Ekta skólaverkefni...ja eða fyrir áhugasama um íslenska tungu.
Vera með...

laugardagur, nóvember 11, 2006

Loksins bloggað



Við TJ eyddum kvöldstund með þessum gæja í gær og höfðum mikið gaman af.
Ég á samt alltaf erfitt með að horfa upp á grín gert af gömlu yndislega góðu fólki. Sem betur fer var senan ekki það löng! Allt annað var top-notch!

Það er búið að vera mikið að gera skólalega upp á síðkastið og skilaði ég möppu í gær fyrir seinasta verkefnatímabil. Jeij...nýtt tímabil á mánudaginn og þá er ég ekki að tala um kortatímabil;)

Harpa og frítt föruneyti koma hingað eftir skuggalega stuttan tíma...ótrúlegt hvað tíminn líður hratt...og hlökkum við mikið til. ég er meira að segja búin að fjárfesta í árskorti í tivoli til að geta skundað með á jólamarkaðinn þar sem opnar 16.nóv. Ég á ábyggilega eftir að vera tíður gestur þar fram að jólafríi nú þegar maður getur bara valsað inn hvenær sem er.

Jæja helgin framundan með sínum skemmtilegheitum ekkert planað og allt opið

-Góða helgi

sunnudagur, nóvember 05, 2006

Fótboltamyndir (ath. fengnar að láni:)



Hér er slóðin á restina að fótboltafjörinu...Guðrún Ragna var myndavélakona-ferðarinnar

laugardagur, nóvember 04, 2006

Stuð i Köben



Fórum á leikinn á miðvikudaginn. Það var bara stuð og sérstaklega þar sem "okkar" menn unnu. Samt svoldið súrt að Man. United hafi ekki sýnt betri takta...i was not really impressed.



Stjörnufans hér að fimmtudaginn...við löbbuðum framhjá ráðhúsplássinu þegar tónleikarnir þar voru í gangi..ég var dauðfegin a' geta farið heim undir teppi og fylgst með þessu í imbanum því það var alveg ískalt úti.

Í gærkvöldi var svo jólabjórinn seldur og mikil stemmning. Ég fór í "Mtv after-partýið í skólanum mínum. Voða fjör. Svo stakk ég af þaðan og hélt niður í miðbæ að hitta nokkra íslendinga og elta jólabjórsbílinn (eins og kóklestin heima). Það var rosa gaman. Fólk var með Tuborg jólasveinahúfur með blikkandi dúskum, syngjandi og trallandi. Maður kom seint heim.

-í dag er afslöppunardagur. Fólkið sem er að flytja inn í íbúðina fyrir ofa okkur er að gera einhverjar voða breytingar svo það heyrast skemmtileg borhljóð og bank og fleira. Þurfti akkurat að vera í dag:/

Góða helgi fólkens

miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Fyrsti snjorinn...

...kom í morgun!
Þetta var/er blautur snjór og þar af leiðandi nær hann ekki að festa sig heldur bráðnar einn tveir og tíu.
En þrátt fyrir það...jeij jólin eru að koma(athugið minna en 2 mánuðir til jóla!)


mánudagur, október 30, 2006

Það er fatt betra i heimnum en...

.....jóga. Það er amk á topp 10 listanum mínum!!
Það er bara ótrúlegt hvaða áhrif nokkrar spes æfingar geta haft á mann.

Annars allt gott að frétta héðan. Við fáum gesti í einnar nætur gistingu á miðvikudaginn(mega auðvitað vera lengur) það er hið stórskemmtilega par frá Århus sem ætlar að skella sér með okkur á FCK-MAN.UNITED leikinn.

Svo er allt að verða vitlaust í MTV european music awards hér. Það fer allt fram á fimmtudaginn, voða stemmning fyrir því.
Var að labba yfir Rådhuspladsen áðan og þar eru þeir komnir langt með að setja upp risa svið sem á að vera vettvangur tónlistaratriðina og skemmtiatriðana. Þó er allt fræga fólkið og svo verðlaunaafhendingin sjálf í ráðstefnuhöllinni "Bellacenter" sem er svona korters keyrslu í burtu. Lógískt?...nei ekki finnst mér það
Auðvitað verður maður að skella sér í after partýið hjá P.Diddy á Nasa klúbbnum þar sem sérinnflutt Don pergion kampavín verður serverað. Og jafnvel partýið hans Snoop á einhverjum stað þar sem hann hefur látið fólkið mála staðinn allan bláan að innan fyrir þetta eina kvöld í tilefni að útgáfu plötu sinnar sem heitir e-ð með "blue" í titlinum.
Já mín er með allt það helsta á hreinu í sambandi við þennan atburð;)

Svo kemur jólabjórinn á föstudaginn. Það er voða stemmning. Kl. nákvæmlega 20:59 (að mig minnir) mega barirnir byrja að selja jólaølinn! Sama kvöld er bekkurinn minn í skólanum að standa fyrir fredagsbar fyrir nemendur og þemaið verður s.s. MTV after-after party...verður án ef stuð.

Nóg að gera hjá minni!
Lovs*