...miðvikudagur...prófaði að blása gler og að búa til einhverja klumpa úr gleri...for the first time! Mín ákaflega stolt af klumpunum sínum og svo míní "vasanum"( sem átti að verða staupglas) sem ég blés....ég er bara hetja!!
-fimmtudagur...skólinn byrjaði með tilheyrandi stuði og verkefnum. Fyrsta æfing: að hanna lógó fyrir "vegetarian restaurant" mín á alveg á heimavelli þar:)hehe....fékk TJ minn aftur frá Tjékklandi... fékk fínar gjafir og mikinn þvott eftir fjarveruna:) Mín hæst ánægð með allt saman!
-föstudagur TJ lagðist í bælið vegna veikinda...ég mætti aðeins í skólann og hélt svo heim til að hjúkra sjúklingnum.
-laugardagur...ennþá geisa veikindi og mín þrífur íbúðina ásamt því að vinna í skólaverkefninu. Á meðan ég svo baka súkkulaðiköku fæ ég þá snilldar hugmynd að prófa í fyrsta skipti ever að búa til franska lauksúpu. Nema það að prósessinn tók amk 2 tíma...mæli með að fólk hafi góðan tíma ef það ætlar sér að leggjast í svona verkefni. Hún varð reyndar mega góð og vellukkuð:)
Fór svo í bíó á "Little Miss Sunshine" með Sólveigu og Georgi. Fannst hún alveg snilldar fyndin...mæli með. Svo drekktum við okkur í heitu súkkulaði með vanillu ís á Roberts Coffee á eftir:)
-Sunnudagur.....skólaverkefni...TJ e-ð að hressast....og rólegheit.
Þar hafiði það...rólega helgin mín í hnotskurn
Adios í bili
p.s. engin ábyrgð tekin á stafsetningarvillum í þessum texta!


8 ummæli:
ég get nú bara með stolti sagt þér að það er engin villa í þessum ágæta texta :)
Gott að heyra að Troels sé allur að koma til! Og rosalega langar mig í franska lauksúpu við að lesa þetta ;0)
kv. Birna
Hvernig var little miss??
Mæli með bæði lauksúpunni OG little miss sunshine...(eins og ég skrifaði í textanum Sigga;)
Arna...þar var ég heppin...bara gott að hafa varann á þegar íslenskunemar gætu tekið upp á þvi að lesa þá;)
sunnudagur...talaði við Dröfn í símann...
fimmtudagur: hugsaði meira og minna um hörpu allan daginn
föstudagur: ætlaði aldrei að geta sofnað vegna aðskilnaðarkvíða-harpa á íslandi
laugardagur: svaf lítið. saknaði hörpu
sunnudagur: drakk sorgum mínum og grét af eymd með mynd af hörpu á barmi mér
Bestu kveðjur
X
(Þekki þig ekki neitt, les bloggið þitt og les hugsanir fólks úr órafjarlægð.vorkenni þér geðveikt. þessi harpa hlýtur að vera frábær)
Já Harpan er snilld...það er ekki spurning! Gaman að fá komment frá öðrum aðdáðanda:)
p.s. þín upptalning er mun nærri lagi en það sem ég skáldaði;)
-ást í breiðholtið
En hvað er gaman hjá þér í skólanum, mig hefur alltaf langað til að prófa að blása svona gler
Skrifa ummæli