....í morgun eignaðist ég litla sæta frænku á Íslandinu góða.
Þriðja pæjan í þeirri fjölskyldunni. Til hamingju með það!
Þetta þýðir bara eitt og það er að nú get ég farið með góðri samvisku og ærinni ástæðu í barnadeild H&M og aðrar búðir og skoðað/keypt allt það sæta og krúttilega þar.
Frá og með deginum í dag byrjar s.s. "fæðingartímabil" sem mun standa fram á vor, með síðustu fæðingar í maí.
Æðislegt...ætli það megi flokka þetta undir vorboða?


6 ummæli:
hvað með þig eyja litla? á ekkert að taka þátt í gleðinni? ;)
Nje Arna mín...ég og þú sitjum í sama bát hvað það varðar...bátnum Hægferð...amk.ennþá;)
já.. æi sá bátur er bara ágætur stundum. eþaggi? ;)
Já nú styttist óðum í litla hvolpinn. Hvuttinn (mamman) búin að þvo, strauja og flokka eftir stærð. Nú er bara smá bið;) Kv. Guðrún Anna
Það kemur Birna mín...einn daginn velta fötin út úr skápnum;)
Ánægð með þig Guðrún...gott að æfa sig svona fyrir mömmuhlutverkið. Og nú þegar þú ert komin í vinnufrí þá er þér velkomið að koma til mín til að strauja og flokka í skápinn minn...hehe
Arna þetta er besti báturinn....við eigum þá bara ennþá allt það besta eftir...ekki spurning;)
hei, ég eignaðist lítin frænda 28. febrúar!!
það var greinilega góður dagur
kv.
hildurs
Skrifa ummæli