
Flutningur planaður á laugardaginn, þar sem við erum aðeins á undan áætlun með málunina. Það er ekki að spyrja að dugnaðinum ( og það þó ég segi sjálf frá)!
Herbergið á myndinni er vinnuherbergi/gestaherbergi.
Það stefnir í að Ragna ætli að næla sér í titilinn "fyrsti gesturinn" á nýja staðnum, þar sem hún ætlar að koma til Köben um miðja maí.
Guðrún Anna og Óli Róbert-til hamingju með soninn!
Jana og Einar-til hamingju með dótturina!
Svo er stutt í Birnu og Andra dóttur/son.....allt að gerast þessa dagana!


8 ummæli:
looking good, gólfið glansar alveg :)
Rosa stuð, allt að gerast í barnamálum! Smá stærðarmunur á börnunum hjá Jönu og Guðrúnu, 7 cm munur :)
Svo er framtíðarleikfélaginn ekki langt undan... spennandi spennandi :)
kv. Birna
líst vel á þetta.. lítur mjög vel út :)
kannski maður skrái sig á gestalistann þegar líða fer að hausti ;) vetrarvörurnar í h&m alveg hrópa á mig!
looking good!!! Ég og Kristín María komum pottþétt í heimsókn til Hildar frænku þegar Visa reikningarnir kólna. Guð einn veit hvenær það verður...en það er nú annað mál;)
Hlakka til að sjá meira;)
Luv og vá hvað ég hlakka til að sjá ykkur í lok maí. Tjútt og trall? Já, ég held það nú. Þurfum að endurupplifa stemminguna frá því á rejúníoninu...ha ha ha...
pantverameðídjammi!!
sagði einhver mojito?
Held ég sleppi djammi í lok maí ;) En bragðarefurinn er á dagskrá! :)
Kv. Birna
já það líka...;)
Takk fyrir hamingjuóskirnar:)
Skemmtilegt frá því að segja að stelpan mín og strákurinn hennar Guðrúnar eru fjórmenningar.
Bíðum svo bara spennt eftir Birnubarni.
Kv. Jana
Ég veit ekki með fyrsta gestinn.. finnst eiginlega að ég ætti að fá að vígja pleisið í lok júní. Hmm...
En fer svo ekki bara að koma að þér.. ætti þetta ekki að vera vinnu/gesta/BARNA herbergið?? :)
Skrifa ummæli