sunnudagur, desember 03, 2006

Fyrsti i aðventu..



Búin að vera fín aðventuhelgi...jólabazar og föstudagsbar í skólanum mínum á föstudaginn. Fullt af fínum hlutum til sölu sem nemendur höfðu búið til og góð jólastemmning. Bara mikið stuð, mikið gaman!

Laugardagurinn fór í að þræða búðir...til að finna jólagjafir. Það tókst ágætlega...farið var í City2 verslunarmiðstöðina og risa Ikea. Bæði fínar "búðir" og nóg hægt að versla...en mikið rosalega verður maður þreyttur á að dröslast um á svona stöðum. Hreinlega bara allt of mikið af fólki!

Sunnudagur fór í kósýheit par excelance...kerti, eplaskívur(með engum eplum og eru ekki skífur), teppi, jólapælingar og afslöppun.

Nú eru bara tvö aðventukerti í að ég komi heim í juleferie!!

p.s. Ef einhver tók myndir í afmælinu hennar Drafnar má sá sami endilega senda mér eða pósta þær á blogginu sínu.

Að lokum vil ég segja að ég er mjög fylgjandi þessu og finnst bara asnalegt að það hafi verið gerðar rosa framkvæmdir á þessum veg án þess skipuleggjendur hafi hugsað fram í tímann.


Jóla/jóla kveðja frá moi

1 ummæli:

Haukur sagði...

þú þarft sko ekkert að segja mér að eplaskífur hafi ekkert með epli að gera...been there..done that;)

ástarkveðja, ein vön;)