sunnudagur, júlí 16, 2006

Fretti að það væri rigning...

...og ætla því ekkert að vera að monta mig af veðrinu;) Segjum bara að það sé ágætt hér þessa dagana.

Helgin búin að vera góð. Kíkti aðeins á útsölur á laugardaginn...fann mér pils, tvo boli, flipflop-sandala og sandalaskó sem er bara mjög gott fyrir mig sem vafraði ein og áttavillt um búðirnar í byrjun...en náði mér svo aðeins á strik;)

Fórum í tvöfalt 30 ára afmæli í gær. Voða stuð bara. Hittum Íslands-aðdáðanda sem hefur stundað næturlífið þar af kappi í gegnum starf sitt (DJ) og spilað e-ð þar líka, veltum fyrir okkur sérstakri afmælisgjöf sem enn hefur ekki tekist að bera kennsl á, sló því föstu að strawberry daquiri er ennþá mjög góður drykkur og annað skemmtó.

Sunnudagur tekinn með ró. Fengum góðfúslegt frí frá byggingarframkvæmdum.
Erum búin að fá sófana okkar og eldhúsinnréttinguna. Allt stendur enn í plasti og bíður spennt eftir að fá leyfi til að líta dagsins ljós...allt að gerast!

Engin ummæli: