mánudagur, júlí 31, 2006

Þetta tosast...

...eins og hann faðir minn segir stundum ef eitthvað gengur...en kannski ekki alveg eins hratt og maður helst vildi.
Ég vil þakka öllum fyrir hamingjuóskirnar...i am very happy:)
Við erum annars loksins búin með eldhúsið. Innréttingin komin upp og lítur bara ansi vel út hjá okkur. Á morgun verður lagt í að leggja parket í eldhúsinu og á ganginum. Svefnherbergi og stofa eru í raun fullkláruð fyrir utan nokkur smá atriði.
Við erum farin að glitta í ljósið við enda ganganna- og það svona líka kominn tími til!!!
Í næstu viku mun baðherbergið vonandi klárast þegar bróðir Troelsar kemst til að aðstoða okkur. Þó við getum ýmislegt sjálf þá verðum við víst að viðurkenna að við erum hvorki pró flísalagningamenn né píparar og verðum að láta aðra um það. Bróðir Troelsar er sjálfur að byggja við húsið sitt(tvöflada það að stærð) vegna fjölskyldustækkunar og hefur í nægu að snúast heimavið þar sem hann gerir allt sjálfur..allt frá því að steypa grunninn til þess að leggja þakplöturnar. Svo við verðum bara að bíða róleg.

Lítið annað spennandi héðan. Ég er hægt og rólega að fatta að ég hafi komist inn í skólann og pæli í því á meðan ég festi hurðir á skápa og dunda við að mála. Það var ekki jafn heitt í dag og hefur verið (þó það sé í kringum 22C) og líður mér mun betur í því hitastigi.

Birna er farin að láta í sér heyra á ný...jeij!

Hafið það gott mín kæru:)

Engin ummæli: