miðvikudagur, október 31, 2007

Useless facts




-ég sit við sjónvarpið og horfi á bíómyndina sem er hér að ofan.

Ótrúlegt en satt þá er þetta bíómynd sem eg hef ábyggilega séð oftast á ævinni hingað til.
Ekki vegna vegna þess að ég eigi hana á spólu/dvd og ekki vegna þess að ég leigji hana svona oft og alls ekki vegna þess að þetta sé e-ð meistaraverk.
Þessi mynd virðist bara vera sýnd ansi reglulega í sjónvarpi (í mörgum löndum) og ég virðist bara ná flestum sýningum og get ekki sleppt því að horfa á hana þegar ég sé að hún er í sjónvarpinu.

Það er bara e-ð við hana....

mánudagur, október 29, 2007

Skrifiskrif

Ennþá nóg að gera...

Helgin sem leið var voða íslendinga helgi....við fengum Guðrúnu frænku og Þór í heimsókn og eyddum deginum í að sýna þeim hitt og þetta utan miðbæjarins..mjög gaman og hyggeligt(eins og daninn segir) að fá familí í heimsókn.
Svo var Júlía vinkona hálf óvænt stödd í bænum og ég tók mér smá tíma til að fara að hitta hana. Voða gaman...
Móðir mín hafði beðið vinkonu sína, sem skellti sér til Köben um helgina, fyrir smá góðgætis-pakka til dóttur sinnar. Sem ég fór og sótti á hótelið þeirra. Sit "as we speak" með munninn fullan af trompbitum, stubbum, ópal og hinu og þessu sem innheldur súkkulaði og lakkrís.

Þrátt fyrir allan gestaganginn náðum við samt að kíkja út á halloween-lífið og líka að breyta(svissa hebergjum) í íbúðinni okkar.

Já já...og framundan er líka nóg að gera í skólanum og svo verður Edda vinkona stödd í Köben næstu helgi og ætlar að fagna J deginu með okkur, þá kemur Tuborg jólabjórinn á götuna...það verður náttúrulega bara gaman.


Annars er ég bara að komast í jólaskap en er að reyna að halda aftur af mér fram yfir 1.nóv....

sunnudagur, október 21, 2007

Haust...


Labbitúr í Frederiksberghave, sem er garður hérna rétt hjá, fyrir nokkrum vikum (laufin eru aðeins færri og marglitari nú)


Ég hitti grænlenskan jakuxa(minnir mig að hann heiti) í Nordenhus um daginn



Hver hefur ekki pláss fyrir góðan skrifborðslampa heima hjá sér.... ;)

nóg í bili....

fimmtudagur, október 18, 2007

Lofbylgjurnar..once again.

oooooh mig langar svo á airwaves...ad sjá hitt og thetta..buck 65, jenny wilson, loney dear, meira og meira og fullt af ødru..líka mikid skemmtilegt íslenskt í gangi...

0h mig langar svo...........!!!

þriðjudagur, október 16, 2007

Blogg blogg blogg

ég er með óvenjulega mikla þörf fyrir sætindi þessa dagana...kannski ekki óvenjulega en samt meira en í síðustu viku. Þetta gerir það að verkum að ég er sífellt að fara fram í eldhús, opna skápin til að finna mér e-ð sætt. Er einhver með lausn á þessu vandamáli??...ég er að verða svoldið þreytt í fótunum á þessu endalausa labbi!!!
(Mín kenning er sú að það sé vegna þess að við keyptum poka af óvenjulega góðri tegund af skólakrítum í Berlín sem er einmitt geymd í eldhússkápnum)

Anyways...þá er ekki mikið að frétta...Berlínarferðin var einkar vellukkuð. Stuð í bílnum báðar leiðir og í ferjunni báðar leiðir. Alla 12 tímana sem við eyddum í ferðalagið:)
Svo var bara reynt að taka inn eins mikið af Berlín eins og hægt var á einum og hálfum degi. Tókst bara vel í alla staði!!

Nú er nóg að gera í skólanum og í jóga og í glerblásun og vinna og bara lifa lífinu.

Æ er e-ð andlaus með þetta blogg þarf að reyna að koma mér í gírinn....finnst bara svoldið eins og enginn lesi þetta.
Kannski könnun sé málið...

Hverjir lesa þetta blogg að meðaltali einu sinni í viku??!! Speak up!

föstudagur, október 05, 2007

Offfffff to Berlin.....




Leiter geiters:)

miðvikudagur, september 26, 2007

frettaskot...

....hef komist að því að ég þekki greinilega fáa (tja eða enga) sem hafa komið til Berlínar. En þrátt fyrir það hlakka ég mikið til Berlínarhelgarinnar okkar sem verður farin í byrjun okt...:) jeij...roadtrip!!!!!

Við höfum verið að "rímódela" og breyta í stofunni okkar...og íhuga/skoða borðstofustóla...og keyptum funky gólfteppi sem á að halda tásunum hlýjum í vetur. Hef lengi haft issue gagnvart gólfteppum en er öll að koma til og er að gera mitt besta í að "bonda" við teppið.

Skólinn bara rúllar....verkefni í gangi sem gengur út á að hanna lausn á einhverju vandamáli á spítaladeild. Læt ykkur kannski vita þegar við höfum valið eitt af öllum þeim vandamálum sem leynast á svona stað...!

Í kvöld ætlum við TJ á "Copenhagen filmfestival" bíómynd sem nefnist "Jar City" sem á frummálinu heitir víst "Mýrin".
Gaman að fara á íslenska mynd hér í Köben...ég er líka buin að telja TJ trú um að þetta sé hörku mynd...og vona bara að hún standist væntingar..

laugardagur, september 22, 2007

Vantar sma upplysingar....

við erum að plana míní-ferð til Berlínar. Okkur vantar upplýsingar um borgina....við ætlum okkur að keyra þangað í grænu þrumunni..
Allir sem hafa (fremur nýlega) heimsótt þessa ágætu borg eru beðnir um að deila með mér(okkur) áhugaverðum staðreyndum og upplýsingum um pleisið.
-Góð hótel, "must see´s", veitingastaðir, söfn, búðir, svæði....and so on and so on....

Ég efast þó um að það verði tími til að heimsækja ísbjarnarhúninn Knút í dýragarðinn fína....

Annars allt gott að frétta héðan fólkens...

þriðjudagur, september 18, 2007

Þetta ætti maður að hlusta a a hverjum morgni.....



Það eru nú þó nokkur ár síðan þetta lag var "hit"....í þe næntís!
Heyrði þetta í útvarpinu í dag....og fannst ég bara verða að koma þessu áfram til ykkar....

Lov frá Kbh!

laugardagur, september 08, 2007

Jææææja..

..skólinn að byrja, haustlitirnir er farnir að láta sjá sig, hlýjar peysur og húfur aftur komnar í verslanir...og það þýðir að tími bloggsins blómstrar enn á ný!!

Ég gærkvöldi bauð TJ mér á tónleika með Seabear og Benna Hemm Hemm í "Nordatlantenshus" hér í Köben. Þetta "hús" er svokölluð miðstöð fyrir eyjarnar langt norður af Danmörku þ.e. Ísland, Grænland og Færeyjar.....anyway þá voru þetta ágætis tónleikar og þá sérstaklega Seabear.....ég var að sjá B.H.H. bandið í fyrsta skiptið og þekkti ekki beint tónlistina hans og komst að því að þetta er ekki beint minn tebolli...þar sem ég stóð mig að því að hálf dotta í miðju show-i...eða kannski var það bara færeyski bjórinn sem var í boði...mjehe!
Seabear voru í stuði....mæli eindregið með þeim!

Annars er bara einn dagur búinn af skólanum. Þar er tölvutímakennsla í gangi þar sem við erum að læra 3D Max...þrívíddar prógram. (Ímyndið ykkur Ikea-eldhúsplönunar-prógrammið bara mun flóknara) s.s. fín önn framundan...

Annars leggst haustið (með myrkur og kulda) bara vel í mig...(það gerir það yfirleitt þegar stórar hlýjar peysur eru í tísku ;)...og ég er búin að kaupa fullt fullt af kertum til að takast á við dimmuna...þetta verður bara kósí!


Ágætis byrjun

meira seinna

leiter geiter

þriðjudagur, september 04, 2007

Hahahah..hver man ekki eftir drekanum



ég er bæ þe vei komin aftur til Köben eftir brilliant Íslandsferð....

Þeinks gæjs

miðvikudagur, ágúst 29, 2007

Eg er a Islandinu..

..og þess vegna nenni ég ekki að blogga!!

Bara svo þið vitið...

laugardagur, ágúst 18, 2007

Afmælisgjöfin og afmælid..

Fíni nýji afmælissíminn minn..... myndirnar sem fylgja eru teknar með símamyndavélinni..góð gæði þar á ferð, þó að inni-myndirnar séu svoldið blurry þegar þær eru í fullri stærð
Er hann ekki sætur!?


Fundum enn eina Cowparade-kúnna í tivoli..thessi var töff..pulsukú!


Afmælismatur á Wagamama....


Við stóðum okkur eins og hetjur með prjónana.....

Annars var ég að klára H.P.bókina...ágætis saga, þó maður verði svoldið ringlaður eftir margra klukkutíma intensíva lesningu.

föstudagur, ágúst 17, 2007

Its that time of year again...



Gódir hálsar..ég er ordin 26 ára gømul...og stolt af thví!

Vonandi njótidi dagsins thví hann er í bodi míns..afmælisbarnsins

þriðjudagur, ágúst 14, 2007

Jess

Tölvan mín lifir....ég er svo þakklát fyrir að tölvan mín dó ekki algjörlega.
Vonandi lifir hún e-ð áfram þó ég taki þessu tölvu-áfalli sem fyrirboða....

Nú er ég amk aftur komin með msn og skype....

föstudagur, ágúst 10, 2007

Smá krísa

...ástin mín(tølvan) fékk vægt taugaáfall í fyrradag..svo næstu dagar fara í ad endurbyggja netslódir og thessháttar...bear with me...

þriðjudagur, ágúst 07, 2007

Það er gaman i Wiii

Verslunarmannahelgin in a nutshell

fyrst að ég er nú veik þá get ég alveg eins bloggað....

Verslunarmannahelgin mín var mjög fín...

Föstudagur: Simpson myndin tekin á frumsýningu hér í Danaveldi...þó ég hafi heyrt að fullt að íslendingum vorum löööngu búnir að sjá hana áður. Danir alltaf svo seinir í bíómyndum..
Eftir það var farið út á lífið hér í Köben, á stað sem heitir Vega. Mjög fínt kvöld.

Laugardagur: Bíltúr upp "Strandvejen" í nýja fína bílnum okkar. Mjög falleg leið með fram sjónum sem er gaman að keyra..arkitektúr t.d. Arne Jakobsen-húsin, -leikhúsið og -bensínstöðin ásamt stórum og flottum ríkisbubba villum. Þetta er svoldið eins og Hollywood Kaupmannahafnar með ríka og fræga fólkið. Nóg hægt að skoða þar...
Dagurinn endaði svo í "Amager strandpark" sem er tiltölulega nýlega "byggð" strönd stutt frá Köben. Svoldill Miami fílingur í gangi þar. Mjög næs á góðum og heitum degi..

Sunnudagur: heimsóttum systur TJ og mann hennar út í Lyngby þar sem þau eiga hús með rosa fínum garði...hitinn fór upp í 27 gráður svo við eyddum mestum deginum þar að týna epli úr trjánum og grilla....

-ég kvarta nú ekki yfir dagskránni...hefði samt verið gaman að komast í heitann pott og grilla eins og eitt lambalæri.


Eftir þetta allt saman hefur varnakerfið greinilega brotnað niður....og er nú veik heima og hálf sef af mér þessa yndislegu heitu daga sem búið var að lofa..næstu dagar eiga auðvitað ekki að vera jafn spennandi sólarlega séð...just my luck!

Veik...

...loksins komin sól og ég er veik...kommon!

föstudagur, ágúst 03, 2007

Verum god vid hvort annad....



..það borgar sig (fyrir flesta)!



Góða-verslunarmanna-helgi....!!!