mánudagur, október 29, 2007

Skrifiskrif

Ennþá nóg að gera...

Helgin sem leið var voða íslendinga helgi....við fengum Guðrúnu frænku og Þór í heimsókn og eyddum deginum í að sýna þeim hitt og þetta utan miðbæjarins..mjög gaman og hyggeligt(eins og daninn segir) að fá familí í heimsókn.
Svo var Júlía vinkona hálf óvænt stödd í bænum og ég tók mér smá tíma til að fara að hitta hana. Voða gaman...
Móðir mín hafði beðið vinkonu sína, sem skellti sér til Köben um helgina, fyrir smá góðgætis-pakka til dóttur sinnar. Sem ég fór og sótti á hótelið þeirra. Sit "as we speak" með munninn fullan af trompbitum, stubbum, ópal og hinu og þessu sem innheldur súkkulaði og lakkrís.

Þrátt fyrir allan gestaganginn náðum við samt að kíkja út á halloween-lífið og líka að breyta(svissa hebergjum) í íbúðinni okkar.

Já já...og framundan er líka nóg að gera í skólanum og svo verður Edda vinkona stödd í Köben næstu helgi og ætlar að fagna J deginu með okkur, þá kemur Tuborg jólabjórinn á götuna...það verður náttúrulega bara gaman.


Annars er ég bara að komast í jólaskap en er að reyna að halda aftur af mér fram yfir 1.nóv....

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Bíddu bíddu, hvað má gerast 1. nóvember? Þá er of snemmt að byrja að spila jólalög, það er ekki fyrr en 1. des :0) Ekki má skreyta þá... hmm...

Birna

Nafnlaus sagði...

1. nóv. er fín byrjun fyrir jólalögin.. ég er byrjuð :)

.:Eyjan sagði...

Birna...sko sem móðir þarft þú að vera góð fyrirmynd og gefa dóttur þinni góðan tíma til að læra jólalögin....:)
Ég spila jólalög frá miðjum nóv og skreyti kannski í byrjun des..en það getur bara ekkert stöðvað jólaandann sem er að komast yfir mig þessa dagana.

Ánægð með þig Arna þú klikkar ekki á lögunum...sem þú virðist byrja að spila í september :)

Nafnlaus sagði...

Haha... já og ef ég næ að kenna Katrínu Ingu jólalög fyrir þessi jól þá hlýt ég að komast í eitthvað vísindablað ;0)

Nafnlaus sagði...

barnið er auðvitað kýrskýrt.. ekki spörning. ég kem og tek með henni lagið á þorláksmessu.. treysti því að þessi helstu verði komin þá.

annars hafa móðir mín og systir hennar þá reglu að það megi spila jólalög í þeim mánuðum sem enda á -ber. einu sinni kom ég að þeim í ÁGÚST að spila og þá var viðkvæðið.. "arna.. veistu ekki það er ágústber?"

þær hafa nú aðeins skánað hvað þetta varðar.

.:Eyjan sagði...

Hahahah...ég ætla héðan í frá að eiga afmæli í Ágústber...miklu meira spennandi en að eiga afmæli í mánuði kenndan við karlsmannnafn...