sunnudagur, apríl 27, 2008

Eigum við e-ð að ræð etta...?

Ég í Köben. Sigga í Ríó í Barsilíu. Ma og pa í Búdapest...

Afhverju er ég sú eina sem færist ekki úr stað?

þriðjudagur, apríl 22, 2008

Heimsóknar helgin mikla

Nú eru stelpurnar farnar aftur til íslandsins eftir mikla stud helgi.
Mikid keypt og mikid skodad.
Malmø, Laundromatinn og ýmislegt annad tekid fyrir...ad ég tali nú ekki um Strikid.

Thad var yndislegt ad hafa thær hér í heimsókn og vonandi lídur ekki á løngu thar til thær láta sjá sig hér aftur.

Thanx girls fyrir góda helgi

þriðjudagur, apríl 15, 2008

Kreist!

Blogg blogg...thetta er bara ekki jafn audvelt og thad var hér ádur fyrr.
Skrítid ad madur sé ad pína sig svodlid í ad skrifa e-d hingad inn. Og mér sem finnst svo ágætt ad lesa blogg annara.
En sumir er víst "natuaral" bloggarar á medan adrir strøggla:)

Hmmm..í thessum tøludu ordum er fjølskylda mín ansi dreifd. Pa er einn eftir á íslandinu góda. Ég í Køben. Ma í Malaví. Sigga í Argentínu. Thrjár heimsálfur í gangi..takk fyrir! Vid erum augljóslega miklir heimsborgarar í familíunni!

Ég fæ ansi skemmtilega heimsókn á næstu døgum. Skvísurnar Ragna og Harpa ætla ad taka verslanir Køben med trompi og kannski restina af borginni líka ef thær hafa tíma til. Vid munum án ef tralla e-d og skemmta okkur konunglega um helgina.
Thad er einmitt frídagur í danaveldi á føstudaginn sem kemur mér ansi vel en kannski theim skvísum adeins verr thví verslanir munu vera lokadar. Smá panikk;)

Á morgun á ég ad skila skólaverkefni sem er auglýsingarherferd fyrir CPH:DOX sem er international heimildamynda-bíóhátíd sem haldin er árlega hér í borg. Spennandi ad sjá hvernig lidid tekur í thad sem ég sýni theim. Ein tillaga af 20e-d tilløgum. Vid erum ansi mørg í bekknum.


Jæja nú get ég ekki kreist fleiri"fréttir" fram í augnablikinu en sjáum nú hvort ad ég geti ekki haldid mér í æfingu og skrifad aftur fljótlega.

Lifid heil!

Kvedja
Ritstjórn Eyjunnar

fimmtudagur, apríl 10, 2008

Vorið er að koma í Köben!



í skólanum í dag sátum við úti að borða hádegismat með sólinni.
Ekkert smá upplífgandi þegar birtan og hitinn mætir á ný...eins og góð vítamínssprauta!

Vonandi verður aaaaaallt sumarið svona!

mánudagur, mars 31, 2008

Langar í hita og sól!!!




Nú væri ekki slæmt að vera með henni Siggu minni í Buenos Aires....heitt og gott!

sunnudagur, mars 30, 2008

Pamplemousse!






París var snilld!
Við erum annars komin heim fyrir löngu....gleymdi bara að setja inn myndir!

mánudagur, mars 17, 2008

Hanging with the frenchfries



Þarna verðum við á morgun og næstu 4 daga eftir það!!!

p.s. það snjóar villt og galið hér í Köben...það er bara alls ekki nógu sniðugt!

laugardagur, mars 08, 2008

Eðal tónleikar!!





Fröken A. Lyklar skúffaði aldeilis ekki aðdáðendur sína í þetta skiptið.
Langt síðan ég hef verið svona star-struck:)

Brjálað show og góð tónlist og stemmning allan tíman. Daman hefur þol á við fíl...dansandi um sviðið í risa hælum, syngjandi og spilandi á píanó....og hélt kúlinu allan tímann - 2 tímar nonstop.

sunnudagur, febrúar 24, 2008

Konudagurinn...

ég blogga greinilega bara á merkisdögum. Þó að ég hafi nú ekki alveg verið með það á hreinu að það væri konudagur fyrr en í dag. Ég gleymdi þá auðvitað líka að nefna það við TJ fyrr en rétt áðan. Hann gaf mér þá poka af mozart kúlum sem við áttum uppi í skáp. Ég gat svosem alveg sætt mig við það : )

Hér er að koma vor...tel ég amk. það hefur ekki snjóað lengi og svo er komið brum á trén....sumarið á næsta leyti.

Ýmsir spennandi gestir eru að fara að láta sjá sig hér í W10 (þetta er trend sem ég hef ákveðið taka þátt í ;) næstu daga.

Páskaferðin okkar er enn í plönun og breytist ákvörðunarstaðurinn annanhvern dag.

Annars er allt í góðu gengi hér í Köben...skólinn bara stuð og svo er mín að fara á tónleika með Aliciu Keys í þar næstu viku....spenningur!

Hafið það gott !

fimmtudagur, febrúar 14, 2008

þriðjudagur, febrúar 12, 2008

Ja sei sei...

...hvað getur maður annað en verið stolt af kunningjum sínum þegar árangur þeirra er orðinn svona international.
Hver hefði trúað því að ég væri með sama tónlistarsmekk og Hef gamli....hehe


Læt lagið fylgja með (því ég er orðin svo jútjú- óð)

þriðjudagur, febrúar 05, 2008

Krúttileg bíla auglysing....

Hahaha


Mér finnst þetta ógeðslega fyndið

Tekið óbreytt beint af fréttavef Mbl.is:

Páfagarður hefur greint frá því að enn hafi dregið úr fjölda þeirra sem vilja helga kirkjunni líf sitt með því að gerast nunnur og minkar. Samkvæmt nýlegri samantekt fækkaði þeim sem tilheyra reglum kaþólsku kirkjunnar um 10% á milli áranna 2005 og 2005 og eru þeir nú rétt innan við ein milljón. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.


Alveg fáránlegt að fólk vilji ekki gerast minkar lengur!!?!!



(Mbl þarf virkilega að taka sig á í stafsetningunni...villurnar verða alvarlegri og vandræðalegri með degi hverjum)

þriðjudagur, janúar 29, 2008

sunnudagur, janúar 27, 2008

Helgin

...var ansi góð.

Við vorum menningarleg og skelltum okkur á sýning kunstindusrti museet.

Fórum á tónleika með Baby Woodrose(sem sjást í vidjóinu fyrir neðan) og Setting Sons. Og tókum þátt í fjölbreyttu næturlífi borgarinnar með hressum vinafólki.

Fórum í afmæli hjá vinkonu minni og svo á spilakvöld með frændfólki TJ



Skólinn byrjar á morgun....jeij!

Eigiði góða viku!!

fimmtudagur, janúar 24, 2008

Tilviljun...eða hvað!

Hverjum hefði dottið í hug að stjórnmálamenn og stjórnmál í Reykjavík og Kaupmannahöfn væru í ruglinu á sama tíma
Vitleysingar og nöldurskjóður í fararbroddi báðum löndum....

-ég ætla ekki að halda því fram að ég sé sérfræðingur í pólitík og pólitíkusum...en kommon, hvernig á maður að treysta og bera virðingu fyrir þessu liði þegar það hagar sér eins og smá krakkar!

Fussumsvei!

miðvikudagur, janúar 23, 2008

Náðargáfa?






Ja sei sei!

Janúar

Það er blogglægd eins og mínir ørfáu lesendur hafa víst tekid eftir. Er bara ad vinna thessa dagana...er ad safna fyrir Rómar-ferd um páskana. Skólinn byrjar á mánudaginn og thá loksins (eftir 1og hálfs árs grunnnám)fáum vid ad byrja á línunum okkar. Tilhløkkun í gangi!!

Hér er ekki óvedur, stormur, snjór eda rok. Bara skít kalt.
TJ fer til Austurríkis í byrjun feb í "skiferie" eins og danirnir kalla thad. Á medan verd ég bara dugleg í skólanum.....

Arna kemur í ørstutta(1 og hálfs dags)heimsókn i lok feb. Svo fyrsti gestur ársins er bókadur. Adrir áhugasamir verda ad fara láta í sér heyra fyrir "spring seasonid";)
(Sigga dont worry, thú ert skrád:)

Adios!

mánudagur, janúar 14, 2008

Pæling

Ætli bílhljóð séu í raun bara sungin inn á spólu sem svo er spiluð þegar maður keyrir?
Dæmið sjálf eftir þetta

föstudagur, janúar 11, 2008

Aftur í D.K.



Jæja...komin aftur til Köben.

Vil þakka öllum sem ég náði að hitta fyrir samveruna og hittingana um jólin.
Maður hafði það bara ferlega gott heima og naut jólanna með fjölskyldu og vinum. Þá sem ég náði ekki að hitta í þetta skiptið ætla ég mér að hitta næst þegar ég kem!
Nú fer skólinn bráðum að rúlla og (vonandi) vorið að koma. Er einmitt að lesa undir munnlegt próf sem ég fer í á þriðjudag...það verður ansi áhugavert að sjá hvernig það fer hjá mér.