
Mér finnst þetta ógeðslega fyndið
Tekið óbreytt beint af fréttavef Mbl.is:
Páfagarður hefur greint frá því að enn hafi dregið úr fjölda þeirra sem vilja helga kirkjunni líf sitt með því að gerast nunnur og minkar. Samkvæmt nýlegri samantekt fækkaði þeim sem tilheyra reglum kaþólsku kirkjunnar um 10% á milli áranna 2005 og 2005 og eru þeir nú rétt innan við ein milljón. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
Alveg fáránlegt að fólk vilji ekki gerast minkar lengur!!?!!
(Mbl þarf virkilega að taka sig á í stafsetningunni...villurnar verða alvarlegri og vandræðalegri með degi hverjum)


1 ummæli:
váááá hvað ég er sammála þér! þetta er einmitt bara vandræðalegt oft. það mætti halda að það væru grunnskólabörn í vinnu hjá þeim. enginn metnaður orðinn.. sem og textavarpið, en þar eru villurnar sko mun, mun verri!
jæja.. nóg af tuði :)
ertu að koma til íslands girk??
Skrifa ummæli