þriðjudagur, september 04, 2007

Hahahah..hver man ekki eftir drekanum



ég er bæ þe vei komin aftur til Köben eftir brilliant Íslandsferð....

Þeinks gæjs

miðvikudagur, ágúst 29, 2007

Eg er a Islandinu..

..og þess vegna nenni ég ekki að blogga!!

Bara svo þið vitið...

laugardagur, ágúst 18, 2007

Afmælisgjöfin og afmælid..

Fíni nýji afmælissíminn minn..... myndirnar sem fylgja eru teknar með símamyndavélinni..góð gæði þar á ferð, þó að inni-myndirnar séu svoldið blurry þegar þær eru í fullri stærð
Er hann ekki sætur!?


Fundum enn eina Cowparade-kúnna í tivoli..thessi var töff..pulsukú!


Afmælismatur á Wagamama....


Við stóðum okkur eins og hetjur með prjónana.....

Annars var ég að klára H.P.bókina...ágætis saga, þó maður verði svoldið ringlaður eftir margra klukkutíma intensíva lesningu.

föstudagur, ágúst 17, 2007

Its that time of year again...



Gódir hálsar..ég er ordin 26 ára gømul...og stolt af thví!

Vonandi njótidi dagsins thví hann er í bodi míns..afmælisbarnsins

þriðjudagur, ágúst 14, 2007

Jess

Tölvan mín lifir....ég er svo þakklát fyrir að tölvan mín dó ekki algjörlega.
Vonandi lifir hún e-ð áfram þó ég taki þessu tölvu-áfalli sem fyrirboða....

Nú er ég amk aftur komin með msn og skype....

föstudagur, ágúst 10, 2007

Smá krísa

...ástin mín(tølvan) fékk vægt taugaáfall í fyrradag..svo næstu dagar fara í ad endurbyggja netslódir og thessháttar...bear with me...

þriðjudagur, ágúst 07, 2007

Það er gaman i Wiii

Verslunarmannahelgin in a nutshell

fyrst að ég er nú veik þá get ég alveg eins bloggað....

Verslunarmannahelgin mín var mjög fín...

Föstudagur: Simpson myndin tekin á frumsýningu hér í Danaveldi...þó ég hafi heyrt að fullt að íslendingum vorum löööngu búnir að sjá hana áður. Danir alltaf svo seinir í bíómyndum..
Eftir það var farið út á lífið hér í Köben, á stað sem heitir Vega. Mjög fínt kvöld.

Laugardagur: Bíltúr upp "Strandvejen" í nýja fína bílnum okkar. Mjög falleg leið með fram sjónum sem er gaman að keyra..arkitektúr t.d. Arne Jakobsen-húsin, -leikhúsið og -bensínstöðin ásamt stórum og flottum ríkisbubba villum. Þetta er svoldið eins og Hollywood Kaupmannahafnar með ríka og fræga fólkið. Nóg hægt að skoða þar...
Dagurinn endaði svo í "Amager strandpark" sem er tiltölulega nýlega "byggð" strönd stutt frá Köben. Svoldill Miami fílingur í gangi þar. Mjög næs á góðum og heitum degi..

Sunnudagur: heimsóttum systur TJ og mann hennar út í Lyngby þar sem þau eiga hús með rosa fínum garði...hitinn fór upp í 27 gráður svo við eyddum mestum deginum þar að týna epli úr trjánum og grilla....

-ég kvarta nú ekki yfir dagskránni...hefði samt verið gaman að komast í heitann pott og grilla eins og eitt lambalæri.


Eftir þetta allt saman hefur varnakerfið greinilega brotnað niður....og er nú veik heima og hálf sef af mér þessa yndislegu heitu daga sem búið var að lofa..næstu dagar eiga auðvitað ekki að vera jafn spennandi sólarlega séð...just my luck!

Veik...

...loksins komin sól og ég er veik...kommon!

föstudagur, ágúst 03, 2007

Verum god vid hvort annad....



..það borgar sig (fyrir flesta)!



Góða-verslunarmanna-helgi....!!!

mánudagur, júlí 30, 2007

Hitt og þetta...

...álagningarseðlar eru venjulega óvelkomnir hjá mér...vegna þess að ég þarf undarlega oft að borga e-ð til baka.
En í þetta skiptið var þetta ansi ánægjulegt, græddi heilar 700 íslenskar krónur! Þið getið rétt ímyndað ykkur hverskonar "shoppingspree" ég leyfði mér eftir að ég fékk góðu fréttirnar;)

Ég las mér til um að næturlífið í Reykjavík sé að verða ansi kreisí og villimannalegt. Ætli fólk verði svona aggressívt af því að standa endalaust í röðum fyrir utan staðina...maður spyr sig!

Hér í Dk er loksins farið að rigna aðeins minna...fólk er farið að tala um að sumarið sé á leiðinni...ég trúi nú varla á það en er til í að vera með í að vona.

Ég hef ákveðið að heimsækja heimalandið í lok ágúst og er orðin spennt...það verður gott að koma aðeins heim.

jæja..þetta var smá updeit svo það standi ekki alltaf það sama á síðunni...eins og hjá sumum;)

sunnudagur, júlí 22, 2007

Spain ekki goð..(enn einu sinni)

..hmf...í kvöld á að rigna alveg rosalega hér á Sjálandi.
Talað um að margt eigi eftir að fara undir vatn.
Hvar er danska sumarið með sól, hita, strönd og ís??
Halló!

Held ég vilji bara fá endurgreitt!

þriðjudagur, júlí 17, 2007

Sumó í svíþjóð!


Sænska sveitin..ef vel er gáð sést í TJ týna hindber af trjánum við veginn


í svíþjóð getur maður keypt "skipper brød"...með akkeri á!



ég lét sænska grasið finna fyrir íslenskum kröftum



TJ reyndi að veiða elgi úr veiðistólnum sem við fundum...en þarf víst að skifta prikinu út fyrir byssu ef svo á að vera.


Svo var slakað á "the swedish way"

Ein frá "Cowparade" í viðbót



hmmmm....kökubelja!

Nýji fjölskyldumeðlimurinn!




Bjóðum við hann hjartanlega velkominn...nú erum við þrjú á ný!



En um leið kvöddum við gamla bíllinn...
-megi hann hvíla í friði.

sunnudagur, júlí 15, 2007

Að gefa og þiggja...

Svokölluð "klukkblogg" er della sem kemur upp öðruhvoru..skemmtilegt fyrirbæri..en þó örlítið leiðigjarnt því oftar sem maður þarf að taka þátt. Þar sem ég hef rennt yfir þó nokkur klukkbloggin og fengið að vita hitt og þetta misáhugavert um náungann þá ákvað ég að henda inn nokkrum innhaldslausum upplýsingum um mig.

1. borða helst ekki fiskmeti
2. finnst ekkert leiðinlegra en að horfa á hryllingsmyndir
3. get haft ansi fjörugt ímyndunar afl (þegar mér hentar)
4. finnst rigning þreytandi
5. bíð spennt eftir harry potter bókinni og myndinni
6. sakna fjallanna og hafsins
7. finnst gaman að hjóla
8. langar í snúð


Þabbaraþa!

laugardagur, júlí 07, 2007

Hróa-Hildur

Það var ógeðslega blautt, leðjótt, illa lyktandi, skítugt og rosa stuð!


Nýju hreinu stígvélin mín í bílnum á leið á hátíðina!


Nýju stígvélin mín komin á hátíðina!!


Flestir gáfust bara upp á því að reyna að halda sér þurrum.

Hrói ´07 stemmning





þriðjudagur, júlí 03, 2007

þarna kom það...

...þessvegna hefur rignt svona mikið hjá okkur!
Þeir hafa fengið sólin mína!
Grrrr...

mánudagur, júlí 02, 2007

þjoðhatiðar veðurfar....


....meiri RIIIIIIIIGNING í Köben!!

Bráðum kaupi ég bara miða heim til að fá smá lit á kroppin.
ég vorkenni Hróarskeldu fólki mjööög mikið þessa dagana...þó að það sé "a slim chance" að ég fái armband til að komast inn á hátíðina. Ef svo fer ætla ég að reyna að kaupa mér fín stígvél!!