...álagningarseðlar eru venjulega óvelkomnir hjá mér...vegna þess að ég þarf undarlega oft að borga e-ð til baka.
En í þetta skiptið var þetta ansi ánægjulegt, græddi heilar 700 íslenskar krónur! Þið getið rétt ímyndað ykkur hverskonar "shoppingspree" ég leyfði mér eftir að ég fékk góðu fréttirnar;)
Ég las mér til um að næturlífið í Reykjavík sé að verða ansi kreisí og villimannalegt. Ætli fólk verði svona aggressívt af því að standa endalaust í röðum fyrir utan staðina...maður spyr sig!
Hér í Dk er loksins farið að rigna aðeins minna...fólk er farið að tala um að sumarið sé á leiðinni...ég trúi nú varla á það en er til í að vera með í að vona.
Ég hef ákveðið að heimsækja heimalandið í lok ágúst og er orðin spennt...það verður gott að koma aðeins heim.
jæja..þetta var smá updeit svo það standi ekki alltaf það sama á síðunni...eins og hjá sumum;)


4 ummæli:
Þú færð fullt af sól þegar þú kemur til heimalandsins.. það er búið að panta sól amk!
-Sigga
Við Katrín Inga hlökkum til að fá þig heim!
Kv. Birna
þú þarft ekkert að óska kreisí næturlíf reykjavíkurborgar þegar heim er komið..því við vatnaliljur stefnum að því að taka þig út fyrir borgarmörkin..;9
hlakka til að sjá þig darling!
óttast átti þetta að vera...
Skrifa ummæli