Já já mín er bara heima í rólegheitunum þetta laugardagskvöld.
Vinnuhelginni næstum lokið...bara ein vakt eftir á morgun.
Helgin hefur mestmegnis farið rólega fram...fyrir utan nokkur skemmtileg atvik.
Þá einna helst eitt sem mér fannst frekar skondið:
Í gær föstudag var ég að afgreiða konu með ca. 6 ára strák. Þegar mamman segir allt í einu "Nei sjáðu hver er að koma". Þegar stráksi lítur út um gluggann sér hann þjóðhetju íslendinga á leið inn í búðina, enga aðra en sjálfa Silví Næt...þó ekki í fullum skrúða, bara venjulegum fötum. Það voru tveir menn með henni en þó ekkiPedro og Julio eða hvað þeir heita.
Stráksi missir hökuna niður á bringu og glápir úr sér augun. Þjóðhetjunni fannst þetta voða sniðugt og heilsaði upp á stráksa og brosti til hans. Hakan fór þá enn neðar.
Ég klára að afgr mömmuna og strákurinn fer með henni út....hann fer alveg niður tröppurnar, passar að vera komin örugglega nógu langt í burtu og snýr sér þar við og veifar eins og brjálaðingur til hetjunnar sinnar. Hetjan snéri baki í strákinn og sá því ekki veifið....ég aftur á móti kom auga á það og þurfti bara að halda niðri í mér hlátrinum á meðan hún var að segja hvaða blóm hún vildi.
Hlýtur að vera skrítið að vera svona mikil hetja fyrir það eitt að láta eins og ofdekruð og illa upp alin gelgja;)
Skrítið en einhverra hluta vegna er þetta bara asnalega töff.
Plan kvöldins: Kvikmyndin Capote...
Lifið heil