mánudagur, júní 26, 2006

Fyrsta stell-söfnunin er hafin!




...þó maður sé nú fyrir löngu komin á hinn almenna stell-söfnunar aldur þá hef ég ekki fyrr talið mig vera nógu gamla né þroskaða til þess að byrja að safna svona dóteríi.
Í útskriftargjöf frá honum TJ mínum fékk ég fyrsta alvöru stell-gripinn sem gerir það að verkum að ég get ekki frestað þessu lengur. Ég byrja s.s. á dessert/súpu skálum....(ég hef ekki alveg sans fyrir hvað er nákvæmlega notað í hvað). Ekki hef ég valið ódýrasta stellið því einn matardiskur úr þessu Royal Copenhagen stelli kostar víst yfir 4000.

En jæja ég er greinilega að eldast og (vonandi samhliða því) þroskast!;)

ástin min....



...er í viðgerð. Þó ekkert alvarlegt..en var samt mikilvægt að laga áður en ábyrgðin rann út.
Ég fæ hana vonandi aftur í hendur í lok næstu viku. Þetta takmarkar að sjálfsögðu net-aðgang minn nema þegar mér tekst að plata TJ til lána mér sína tölvu....tja..eins og núna.

laugardagur, júní 24, 2006

Utskriftardagurinn stori....

....án mín!

Í dag "fæ" ég formlega afhent plögg þess efnis að ég sé nú orðin fullgildur grunnskólakennari.
Óska ég mér til hamingju með það!
Ég óska líka samnemendum mínum til hamningju með daginn.

Birna til hamningu með hann Andra þinn....og ég vil gefa þér gott ráð: taktu með þér nesti og kodda því að brautskrá 957 tekur drjúgan tíma:)


Bestu útskriftarkveðjur
Fröken Hildz

fimmtudagur, júní 22, 2006

Nyjir linkar

ég bætti inn inn nokkrum linkum inn á síðuna.

Langar sérstaklega að benda á Baghdad Burning sem er blogg þar sem írönsk stelpa/kona sem býr í Baghdad lýsir daglegu lífi í þessari stríðahrjáðu borg. Ótrúlega upplýsandi að lesa um hvernig venjulegt fólk upplifir ástandið þarna...

Annar er allt það fína að frétta af okkur. Íbúðarframkvæmdir halda áfram og ganga ágætlega.
Á morgun er Sankt Hans Aften hér í Danmörku...þá fara allir um kvöldið og horfa á bál einhversstaðar. Við tvö höfum ákveðið að fara út á Amager strönd þar sem er hið fínasta strand-park. Við ætlum að grilla og hafa það næs með skemmtilegu fólki og góðri tónlist...vona bara að það rigni ekki eins og í dag.

Góða helgi
kveðja frá moi:)

þriðjudagur, júní 20, 2006

Little ball of joy:)




Skemmtilegur leikur hjá Englandi og Svíþjóð.....Svíþjóð átti skilið að vinna þeir léku svo helv... vel í seinni hálfleik...Beckham og co. voru alls ekki að standa sig!

Annars er ég að fylgjast svona "semi" vel með HM....við erum svo busy í íbúðinni og þar er ekkert sjónvarp ennþá..en ég reyni að horfa á áhugaverðustu leikina (að mínu mati).

Fótbolti er ágætis afþreyging þó hann sé nú ekki lífsnauðsynlegur greyið:)

mánudagur, júní 19, 2006

Nokkrar random myndir i viðbot



Örfaar "random" myndir fra seinustu viku







-Húsin hjá þeim sem við höfum heimsótt í fjölskyldu TJ.
-Hundarnir...Emil og Gríma...voða krútt
-TJ slæst við dagblað í smá roki
-Alveg ótrúlega sniðug laus fyrir lítil baðherbergi....baðið er byggt undir tröppurnar upp á næstu hæð! Mér fannst þetta alger snilld og rosa kósý (heima hjá guðforleldrum TJ).

laugardagur, júní 17, 2006

Gleðilegan þjóðhátíðardag



Vonandi hafiði haft það gott í dag og gert eitthvað "þjóðlegt".
ég var með stór plön um að halda upp á daginn ásamt stórum hóp íslendinga í Danmörku á Amager ströndinni en kom væg flensa, slappleiki og hiti í veg fyrir stuðið...en eins og maður segir þá gengur bara betur næst. Ég verð bara að bíða þanga til á næsta ári með að heyra ræðu Svarars Gestssonar,kaupa samlokur með hangikjöti og harðfisk við undirleik íslendingakórsins....þetta verður löng bið;)

Vonandi rigndi smá á ykkur þarna heima í dag...það er enginn almennilegur sautjándi án smá úrhellis(og helst roki líka;)

föstudagur, júní 16, 2006

Skemmtilegt nafn

Sá þetta nafn í íþróttafréttunum.....ef þessi fótboltamaður tæki upp á því að flytja til Íslandsins góða kæmi vafalaust upp fjöldinn allur af skemmtilegum misskilningi....hahaha...Herra Bakari Kona!!

Ef þið viljið sjá þetta sjálf:
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1207857

fimmtudagur, júní 15, 2006

Ammmmælisdagur



Í dag (15. júnó) eru 19 ár síðan mín kæra uppáhalds og eina systir Sigga Gyða fæddist....innilegar hamingjuóskir frá Köben!!
Vonandi hefur þér tekist að skemmta þér vel í dag og njóta dagsins þrátt fyrir að við gleðigjafarnir séum fjarri góðu gamni á þessum sérstaka degi.

Ammmmmmmmæliskveðjur!!

miðvikudagur, júní 14, 2006

Verlsað og krusað i Kbh.

Hófum daginn á að fjárfesta í 2 sófum. Geri aðrir betur...við vorum rosa ánægð með báða tvo í dag en fáum þá fyrst heimsenda 10 júlí...vegna framkvæmdanna. Vonandi fílum við þá jafn mikið í júlí og við gerum í júní!;)
Við versluðum þá í búð sem heitir Ilva og er risastór...svipað verð og í Ikea en búðin er bara miklu flottari. Svo verður maður jú að kaupa e-ð annað en gamla góða Ikea dótið öðru hverju.

Móðirin var sótt í dag og var keyrt í hinar ýmsu verslunarmiðstöðvar, tekinn rúntur um aðal svæðin, íbúðin (vinnusvæðið) okkar sýnd og fleira skemmtó...
Þar sem ekki náðist nægileg verslun í dag verður tekin fyrir powershopping á morgun (flugið hennar er annaðkvöld). Seinni partinn á morgun fáum við svo alla kassana okkar úr skipasendingunni senda í íbúðina. Þá fæ ég loksins restina af fötunum mínum. Skrítið hvað ein ferðataska með fötum dugar skammt. Eitt pils er sko ekki nóg í 25 gráðu hita!

Í dag keypti ég mér líka skipulags"kalender". Svona litla bók með einni síðu fyrir hvern dag ársins. Nú get ég formlega tekið við heimsóknar-pöntunum, þvi allar pantanir sem fara fram munnlega munu gleymast. Ég get nánast garanterað það..svo munið að láta mig punkta það hjá mér!

mánudagur, júní 12, 2006

Frekar fyndið...hehe

Hundarassa-haldarinn!!



Huggulegt fyrir viskustykkið!!
Haha!!

sunnudagur, júní 11, 2006

Feeling hot hot hot

Í dag var um og ábyggilega yfir 28 gráðu hiti....mjög mjög heitt og nánast logn í borginni sem gerði hitann ennþá meira áberandi...maður þarf sko aðeins að venjast þessu.

Hjólið er að gera góða hluti og er ég dugleg að dáðst að því oft á dag.

Við erum búin að rífa niður fullt í íbúðinni og fara oft á "sorpu" með fullan bíl. Ikea hefur einnig notið návistar okkar TJ og höfum við fundið ýmislegt gagnlegt. Einnig erum við svo heppin að fullt af búðum hefur ákveðið að vera með útsölu þessa dagana svo við getum gert góð kaup í framkvæmdunum. Skelltum okkur á kvöld útsölu hjá Silvan(=Byko) um daginn og keyptum tvær þykkar 3 metra langar gegnheilar eikar borðplötur fyrir eldhúsið á 2000 danskar(kannski ca.=27.000). Okkkur fannst við vera að gera þvílík reyfarakaup.

Nú nenni ég ekki að skrifa meira þar sem ég er orðin svaka þreytt.

Gleðilegan mánudag (komin vika frá því við fórum út....öss ferlega líður þetta hratt)

föstudagur, júní 09, 2006

Simvæddur islendingur i Köben

Loksins hefur mér tekist að ná mér í forláta gsm númer hér úti....var eitthvert vesin á því um daginn þar sem ég ég var ekki komin inn í kerfið hjá dönunum(þjóðskrá).
Nýja númerið mitt er (+45 eða 0045) 20774630

Hitatölurnar hér eru á hraðri leið upp á við og er talað um yfir 25 stiga hita um helgina...ég kvarta ekki.
Móðir mín mætir svo fljótlega á svæðið..hún er á leið á einhverskonar ráðstefnu hér í borg í næstu viku og ætla ég að stela mér smá tíma hjá henni til að drekka einn kaffibolla eða svo...jafnvel sína henni rústirnar af komandi glæsi-íbúð okkar:)

Hef fjárfest í hjóli...mynd kemur fljótlega á netið....ég fer og sæki það á eftir og ætla mér að hjóla eins og brjálæðingur eftir það. Er ótrúlega ánægð með gripinn þetta er ekta ömmu-hjól með körfu og bögglabera og alle græjer....dream come true.

Þarf að þjóta.....kærlig hilsen!

sunnudagur, júní 04, 2006

Hildz talar fra Köben

Jæja þá erum við komin til Köben.
Við erum að reyna að átta okkur á að við séum ekki bara hérna í enn einu fríinu heldur komin til að vera í bili.

Iceland Expr. tókst að klúðra málunum og týna báðum töskunum okkar. Við lentum um hádegið í dag og núna kl.21 höfum við enn ekkert heyrt frá fyrirtækinu með slöppu þjónustuna (þjónustuverið bara lokað og enginn við). Ég sé fram á erfiðan dag á morgun án hreinna fata og alls hins sem ég tróð ofan í tösku. Belive me ég ætla að láta Express heyra það í fyrramálið og þá sérstaklega ef þeir finna ekki töskurnar okkar aftur....grmf! Svo þarf akkurat að vera frídagur á morgun svo maður getur ekki einu sinni skellt sér í búð til að kaupa nauðsynjar.

Takk kærlega til þeirra sem komu í útskriftar/kveðjuboðið á föstudaginn...ferlega gaman að sjá ykkur og gott að geta kvatt ykkur áður en maður flaug af stað. Kærar þakkir fyrir mig og TJ...við vorum hæst ánægð með allt saman.

Ég ætla að reyna að vera dugleg að blogga svo fólk geti aðeins fylgst með því sem við erum að bralla hérna úti. Veðrið lofar góðu og á morgun hefjum við undirbúning að þeim framkvæmdum sem fyrir liggja í íbúðinni okkar...rífa niður veggi, leggja parket, mála og þessháttar stöð!! á meðan framkvæmdunum stendur munum við búa hjá ömmu TJ sem heppilega getur boðið upp á herbergi fyrir okkur.

Meira seinna

Leiter geiters

föstudagur, maí 26, 2006

Living in a box



Pakka pakka jeij!

miðvikudagur, maí 24, 2006

Utskriftardagurinn




Svo stolt af mínum manni!
Héðan í frá er það Mr. Graphic designer:)

mánudagur, maí 22, 2006

Moving on up

Helgin liðin...

-það áttu sér stað massívir flutningar frá mínu kæra æskuheimili Afló. Búslóðin var flutt út á Nes sem mun framan af vera heimili foreldra minna og glæsilegt heimili það.
En skrítin tilfinning er það þó að ókunnugt fólk eigi eftir að leggja í bílastæðið okkar á Afló, opna hurðina með okkar lyklum og sofa í herbergjunum okkar.
En eitt hef ég lært af þessum flutningum, EKKI safna drasli...það á að henda henda henda öllu nema því nauðsynlegasta og persónulegasta.

-Arna var með gleði teiti í tilefni af stúdentstitlinum og var það skemmtilegt mjög. Ég var reyndar lasin og þar af leiðandi ekki partýljón en ég skemmti mér þrátt fyrir það hið besta. Til hamingju aftur Arna mín!

-Ég komst að því að ég stóðst inntökuprófið sem ég fór í í Köben í byrjun maí. Ég fæ samt fyrst svar 28.júlí hvort ég komist inn í skólann...það er svo rosaleg sía inn í þessa stofnun..og ég frk.óþolinmóð hef varla taugar í að bíða svona lengi.

Anywho ca. 2 vikur í brottför....skrítið

föstudagur, maí 19, 2006

Juro-popp



Jæja þá er Silvía "okkar" Næt dottin úr keppni. Verð nú bara að viðurkenna að ég er hálf fegin að þurfa ekki að sjá atriðið aftur á sviði. Hún var alveg ein taugahrúga og söng eftir því greyið. Það getur líka ekki verið annað en erfitt að syngja í karakter á meðan salurinn púar á þig.
Kannski höfum við Íslendingar lært e-ð af þessu.....einkahúmor er einkahúmor og stundum er betra að halda honum þannig.
Hommi og Nammi fá þó stig fyrir diskó-breik-dansinn, hann var hillarious!

Ég veit ekkkert hverjum ég á að halda með á laugardaginn, þar sem Belgía náði heldur ekki kosningu. Það verður amk ekki Lordi...þeir voru nú ekki að gera sig fyrir mig þrátt fyrir mikið lof frá öðrum.

Góða helgi!

þriðjudagur, maí 16, 2006

"eating in the city"

Mín er búin að vera að dugleg í að fara að fara út að borða á "nýja" staði (aka. þar sem ég hef ekki komið áður)

* MARU-japanskur staður rétt hjá Ingólfstorgi.
Ágætis staður með huggulegri stemmningu og nettum bar/koníaksstofu í kjallara. Maturinn ekkert voða spennó, líklega vegna þess að ég tók kjúkling í staðinn fyrir sushi. Japanskur kjúklingur er ekki minn tebolli. Staðurinn er frekar lítill sem er bæði kostur og galli. Komst að því að ég væri fjári lélegur japani. Er of óþolinmóð og klaufsk með prjónana til að geta plummað mig í þeirra samfélagi ásamt því að fíla hvorki heitar tofusúpur né wasaabi sósur.

*ROSSOPOMODORO -ítalskur staður á laugarvegi.
Flott pleis og nóg pláss. Fékk mér hálfmána með fyllingu (skinka og ostur með fancey nafni). Var sátt en fannst hálfmáninn svoldið einmanna þarna einn á hvítum disknum, Hvað varð um að hafa salat með?! ég var sátt en komin með nóg að ostagumsinu í miðjum mána. Ágætis staður en ég verð enginn fastakúnni.

*Hið nýja og endurhannaða KAFFI PARÍS- Austurvelli
Það er búið að breyta lookinu í semi trendy uppastað. Þetta verður sama hang out pleisið fyrir unga krakka en eldri gestir hafa verið hraktir í burtu. Ungu krakkarnir eru bara öllu meiri súkkulaði fólk en áður. Maturinn var barasta ágætur og verðið í góðu lagi. Líklega með ódýrari stöðum bæjarins (tel ég). ég er ekki sátt við þessa "reykingar leyfðar í öðrum helmingi staðarins" þar sem reykurinn er alls staðar hvort sem er. Það var rosa mikið að fólki þarna og greinilegat að margir vilja sína sig og sjá aðra í nýjasta party/matar-pleisi bæjarins.

Jæja þá er útektin búin í bili...og ég held að ég sé líka búin með "út að borða skammt mánaðirns"

mánudagur, maí 15, 2006

Ny Trolla siða

TJ er búinn að gera upp síðuna sína í tilefni af útskriftinni...
Endilega kíkið við:

http://trolli.dk/

Góðar stundir

sunnudagur, maí 14, 2006

Nokkrar myndir fyrir Dröfn i U.S.








Takk fyrir kvöldið skvísos...Kristín María stóð sig með prýði á sínum fyrsta fundi...móðurinni til mikillar gleði:)
Guðrún og Arna ég fékkk enga óhreyfða mynd af ykkur...við tökum fótósession fljótlega:)

laugardagur, maí 13, 2006

Sol og bliða



Summer is here
Þetta eru alveg frábærir sólardagar (þó þeir séu kannski ekki vinsælir hjá prófafólki).
Vonandi heldur þetta bara áfram

miðvikudagur, maí 10, 2006

by the way...

Fyrst ég er búin að skila lokaverkefninu mínu við K.H.Í.....get ég alveg leyft ykkur að kíkja á það.

Enjoy:

http://lokaverkefni.khi.is/v2006/hildhedi/

home sweet home...



Jæja þá er maður komin aftur frá Köben...yfir 20 gráður og yndislegheit.
Þetta var stutt og hröð ferð..tíminn flaug frá mér og sérstaklega þegar ég var að asnast til að fara í vitlausa metró og þurfa að taka næstu tilbaka til að ná réttu(þetta var í stressinu á leið út á flugvöll).
Ég náði samt að spóka mig aðeins á Strikinu og þar í kring áður en ég fór og grillaði með Thilde vinkonu minni í kvöldsólinni.

Allt í allt fín en þreytandi ferð...þar sem ég er ekki svo hrifin af flugvallarheimsóknum með svona stuttu millibili.

laugardagur, maí 06, 2006

Helgin min




Allt að gerast í dag ...TJ með sýningu í dag...út að borða í kvöld...djamm á Vegamótum langt fram á nótt.
Svo fer ég í flug í fyrramálið kl.7:30...sem þýðir rútan kl.5:30 í seinasta lagi...þetta verður erfiður morgun f yours truly.
En ég legg allt þetta á mig til að komast í yfir 20 gráðu hita í Köben. Það er ekki laust við að maður skelli sér á ströndina þegar tækifæri gefst til að fá smá lit á kroppinn!

Hafið það gott um helgina og við sjáumst á þriðjudag( amk. some of you;)

miðvikudagur, maí 03, 2006

Enn ein serian

Varðandi A.N.T.M þá veðja ég á Lisu og/eða Nik.....!!

Einbeitingar örðuleikar...




Eitt próf eftir...á morgun og ég þarf að taka á honum stóra mínum til að halda athyglinni við bækurnar.
Það er svo mikið sem ég þarf að gera um leið og þetta próf er búið á morgun og ég get bara ekki hætt að skipuleggja það.
í huganum er ég "way past that test". Svo skilaði ég lokaverkefninu mínu í gær eftir langat vinnutímabil, sem hefur einnig áhrif á að mig langar bara að vera að gera allt annað núna en sitja við lestur.

Ástæðan fyrir þessu bloggi er í raun bara að ég var að lengja hádegismats-pásununa mína!

þriðjudagur, maí 02, 2006

Hæsta hringekja heims opnuð í Tívolí i Köben




Oh my ég ætla aldrei að prófa þetta...fer upp í 70 km hraða!

Og by the way...B.Ed verkefni in the house...jeij!

sunnudagur, apríl 30, 2006

Handy



Hversu töff væri maður á fótboltaleikjum eða í útilegunni....þægindi eru aukaatriði þegar kemur að lookinu!;)

Flower girk..



Ég lauk mínum seinasta vinnudegi í dag sem formlegur starfsmaður Hlíðablm.
Skrítið? sorlegt? Hmmm...virðist ekki vera búin að átta mig alveg á því ennþá. Fatta þetta seinna....

Á þriðjudag( eftir rúmlega 1 dag) skila ég B.Ed. verkefninu mínu. Big day!
Á fimmtudag fer ég í seinasta prófið mitt sem nemandi Kennó.
Á laugardaginn er opnun útskriftarsýninigar Tj með tilheyrandi gilli.
Á sunnudag skrepp ég til Dk. (kem aftur á þriðjudag)

Þá tekur við málingavinna, möguleg spörslun, pökkun og flutningar út á Nesið
Svo er bara pökkun og flutningar eigin hluta...

-ásamt ýmsu öðru spennó í maí mánuði...

föstudagur, apríl 28, 2006

Afmælis/skirnardagur



Í dag á Harpa formaður Vatnaliljanna 25 ára afmæli.
Vil ég og TJ óska henni til hamingju með árin ásamt því að óska henni fyrirfram til hamingju með nafn dótturinnar (sem verður ábyggilega Hildur!!*wink wink*).

Eigiði nú góðan dag saman lille familie!

miðvikudagur, apríl 26, 2006

Laumulesning



ég er að lesa þessa bók...ekki af því að ég er í megrunarhugleiðingum heldur af því hún er skemmtileg og lærdómsrík. Maður á að drekka nóg af víni borða súkkulaði og ýmislegt annað skemmtilegt...+ tips að heilbrigðu líferni án fyrirhafnar.
Ég kalla þetta laumaulesningu því ég á að vera með 100% ahygli á lokaverkefninu mínu....en leyfi mér að kíkja í þetta áður en ég sofna:)

Mæli með henni!

þriðjudagur, apríl 25, 2006

I am connected




Loksins er ég komin með adsl straum heim til mín eftir um það bil mánaðar bið.
Lúxus líf!

laugardagur, apríl 22, 2006

Paskarnir bunir og gott betur...

...og mín ekki ennþá komin með nettengingu!

Það var nóg að gera hjá mér um páskahátíðina.
Við fengum gesti-bróðir TJ, kona hans og Lára 2 ára dóttir þeirra. Þau bjuggu heima hjá okkur í viku (við vorum á Afló) og kynntust íslandi í fyrsta skipti. Farið var í sumarbústað, Gullfoss/Geysi-ferð, Þingvelli ásamt annari skemmtun.
Ég skilaði lokaverkefninu mínu ( fæ það reyndar aftur eftir fyrstu yfirferð til leiðréttingar).
Páksaeggjaát í hámarki...dauðfegin að páskarnir séu bara einu sinni á ári.
Páskaliljur seldar í blómó.
Málað af krafti í nýja húsinu á Seltjarnarnesi
Og svo ákvað Harpan að fæða glænýtt og ofur krúttilegt stúlkubarn til þessa heims. Enn og aftur til hamingju með litlu dömuna.

Þessa dagan er ég að vesinast í að binda alla lausa enda sem tengjast skólanum. Ritgerðir kláraðar, greinagerðir skrifaðar, málverk fíniseruð og verkefnamöppum skilað.

Allt að gerast....og nú eru bráðum bara tveir mánuðir í brottför Gög og Gokke frá Íslandi.
Time sure flies...

miðvikudagur, apríl 12, 2006

Nu styttist i það!



Já krakkar mínir...nú eru aðeins 3 dagar í súkkulaðibrjálaðið!

Ætli ég verði ekki að viðurkenna að "yours truly" hlakkar ansi mikið til....þó svo að tilhlökkunin sé eilítið frábrugðin því sem maður upplifði í denn.

Þegar ég og Sigrid vorum yngri var þessi dagur alveg óendanlega spennandi. Vöknuðum fyrir allar aldir og snérum öllu húsinu við í leit af súkkulaðieggjunum góðu. Við fylgdum miðum með gátum eða leiðbeiningum sem áttu að leiða okkur að fjársjóðunum. Stundum áttum við í basli með að skilja það sem skrifað var eða teiknað og var þá rokið inn í svefnherbergi foreldranna og tosað í þau þar til lífsmarks varð vart til að fá lausn okkar mála.
Þegar eggin voru fundin (hvort sem það var í þvottavélinni eða undir sófa) voru fyllt stór glös af mjólk og komið sér vel fyrir beint fyrir framan skjáinn.

Þessum páskadagprósess var yfirleitt lokið fyrir kl.08:00


Gleðilega páska allesammen!!

mánudagur, apríl 10, 2006

arans BN

Meira vesinið!!
Erum búin að borga netið í rúma viku núna og routerinn búinn að fara í stillingu hjá Símanum og enn erum við NET-laus.
Lokaverkefnis skil á miðvikudaginn!!
BN er alveg glatað fyrrtæki!!

föstudagur, apríl 07, 2006

Memories



Hér mín yndislega yngri(??) systir á peysufatadegi Kvennó!

Brings back some good memories:)

þriðjudagur, apríl 04, 2006

Draumur?

ég verð að skella á ykkur draumi næturinnar. Mér finnst hann frekar absurd fyndinn.

Ég var s.s. komin með nýja vinnu og var að mæta í fyrsta skiptið. Ég átti að fara að vinna með henni Örnu í þjónustuveri Vodafone.
Ég voða spennt mæti á staðinn en þá er þjónustuversdeildin í húsi sem er eins og Smáralind bara stærri og fullt af búðum og öðrum fyrirtækjum með vinnuaðstöðu líka á staðnum. Ég vafra víst þarna um og skoða allt voða heilluð finn loksins Örnu í einhverjum svona símabás...en hún má ekkert vera að því að tala við mig;) Ég held áfram að vafra um í leit að einhverju eða einhverjum og gleymi mér aftur í búðarrápi. Svo er klukkan allt í einu orðin 18 og allir að fara heim úr vinnunni. Þá hugsaði ég "shit klukkan svona margt, ég hef ekki náð að taka eitt símtal á heilum degi, ég verð ábyggilega rekin"...ég hleyp aftur tilbaka voða bjartýn og ætla bara að redda mér með því að taka nokkur símtöl áður en allir fara. En þá finn ég ekki neinn bás með síma og gefst upp eftir að hafa stefnt lífi og limum í hættu með að stytta mér leið á milli hæða með því að príla e-ð voða.

Það seinasta sem ég man er að ég ætlaði að redda vinnunni með því að segja eitthvað með að fyrsti dagurinn hafi verið svo erfiður af því ég vissi ekkert hvað ég ætti að segja við fólkið í símanum.
- Já mín kæra, góð redding, góður starfsmaður!!

Æ mér fannst þetta svoldið fyndið....nýja vinnan hennar Örnu hlýtur að vera mér mjög hugleikin;)

föstudagur, mars 31, 2006

Krisa!!

Jæja þá er komið að því.
Það verður víst einhver pása á minni frjálsu og óháðu bloggun héðan í frá.
Á morgun 1.apríl missum við netsambandið okkar.
Já hugulsama fólkið hjá Bygggingafélagi Námsmanna(sem við leigjum hjá) ákvað að hætta að þjónusta íbúðirnar með interneti frá og með deginum í morgun.
Ofsalega gáfulega gert af þeim þar sem ALLIR námsmenn eru núna í miklum önnum og sumir meira en aðrir (LOKAVERKEFNI). Alveg óþolandi að þurfa að fara að vesinast í einhverju svona rugli þegar maður á að vera að einbeita sér að skólanum.
Þetta BN fólk hefur engann skilning á réttum tímasetningum.

Aldrei mun ég nenna að leigja hjá þeim aftur og vonandi neyðist ég ekki til þess (*bitur*)

S.s. ekki meira blogg þar til netsamband kemst aftur á í kotinu hjá lokaverkefna-parinu!!

ILL be Back!!

Afmælisoskir




Í dag á hún Guðrún Anna vinkona og Vatnalilja 25 ára stórafmæli!!

Einnig er hún orðinn eigandi glæsilegrar íbúðar á besta stað í bænum ásamt honum Óla Róberti!

Til lukku með þetta allt saman darling!!

Við skálum fyrir þessu í lunch á sunnudaginn;)

miðvikudagur, mars 29, 2006

Nooooooooo........

Eins gott að maður geti áfram keypt ís í sveittu trópísku banana-umhverfi með apa sem talar og selur manni egg með dóti í.
Annars hef ég ekkert að sækja til Hveragerðis framar.

http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1193219

þriðjudagur, mars 28, 2006

Im amazed!!




Þetta er alveg magnað!
Allt er nú hægt að búa til úr pappír....og bara pappír.
Kíkið á síðuna hjá þessum gaur. Hann byggir allskonar dót og eftirlíkingar af hlutum og meira að segja stigum úr pappír og það í fullri stærð.
Svo er bara spurningin hvað er ekta og hvað er pappír .......?

http://oncotton.co.uk/peter/paper/paper.html

....og ég sem hélt að ég væri dúttlari!!

sunnudagur, mars 26, 2006

Frabært framtak!

http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1192638


Kominn tími til!!!

Skemmtileg tilbreyting



Rakst á þessa útgáfu af egginu hans Arne Jacobsen. Efnið er hannað af hollenskum hönnuði,Tord Boontje.
Mér finnst hann töff þó ég myndi kannski velja annan lit á efnið.

Gleðilegan sunnudag!

föstudagur, mars 24, 2006

Mörgæsir eru sniðugar




Jæja bara komin helgi....
Föstudagur: slaka + lokaverkefnisvinna
Laugardagur: heimsækja ömmsuna mína og mögulegt matarboð um kvöldið með möguleika á bæjarferð?
Sunnudagur: Lokaverkefni og kannski bara pönnukökur

Svo kannski læt ég gott af mér leiða í nýju húsnæði foreldra minna....

Jeij ég dýrka lítið planaðar helgar!!

Góða helgi

fimmtudagur, mars 23, 2006

Blowing in the wind!

Þetta veður er alveg að fara með mig!
Ég var komin í vor gírinn um daginn en svo ásnerist allt við.
Það var svo sem allt í lagi í gær þó það væri skítkalt....en nú er líka komið rok.
Þurrt rok sem þýðir sandur í augum og dagblöð í andlitið.
Sumarjakkinn er aftur farinn innst inn í skáp!

Hananú

miðvikudagur, mars 22, 2006

"á að vera að skrifa lokaverkefni"-blogg

Vissu þið að það er í rauninni til vefsíða sem heitir:
- http://www.i-am-bored.com/

Svo rakst ég á þetta blogg fyrir tilviljun:
- http://snap-o-mania.com/

...svona til að lífga aðeins upp á daginn!

sunnudagur, mars 19, 2006

Kommenta verðlaun Eyjunnar!



Hin mikils virtu Kommenta-verðlaun Eyjunnar voru veitt í dag.

Verðlaunahafinn að þessu sinni er Frú Birna F. sem sýnt hefur mikinn metnað við kommentun á síðunni.

Hvatningaverðlaunin hlýtur Ungfrú Sigga Gyða fyrir frumleg og áhugaverð komment.

Öðrum kommenterum þakka ég fyrir þáttökuna og vonast til að fólk leggi metnað í að hljóta næstu verðlaun.


Við hjá Eyjunni.blogspot.com óskum vinningashöfum hjartanlega til hamingju með verðskuldaðann sigur
-Formaðurinn

laugardagur, mars 18, 2006

Laugardagsnörd!

Já já mín er bara heima í rólegheitunum þetta laugardagskvöld.
Vinnuhelginni næstum lokið...bara ein vakt eftir á morgun.

Helgin hefur mestmegnis farið rólega fram...fyrir utan nokkur skemmtileg atvik.
Þá einna helst eitt sem mér fannst frekar skondið:

Í gær föstudag var ég að afgreiða konu með ca. 6 ára strák. Þegar mamman segir allt í einu "Nei sjáðu hver er að koma". Þegar stráksi lítur út um gluggann sér hann þjóðhetju íslendinga á leið inn í búðina, enga aðra en sjálfa Silví Næt...þó ekki í fullum skrúða, bara venjulegum fötum. Það voru tveir menn með henni en þó ekkiPedro og Julio eða hvað þeir heita.
Stráksi missir hökuna niður á bringu og glápir úr sér augun. Þjóðhetjunni fannst þetta voða sniðugt og heilsaði upp á stráksa og brosti til hans. Hakan fór þá enn neðar.
Ég klára að afgr mömmuna og strákurinn fer með henni út....hann fer alveg niður tröppurnar, passar að vera komin örugglega nógu langt í burtu og snýr sér þar við og veifar eins og brjálaðingur til hetjunnar sinnar. Hetjan snéri baki í strákinn og sá því ekki veifið....ég aftur á móti kom auga á það og þurfti bara að halda niðri í mér hlátrinum á meðan hún var að segja hvaða blóm hún vildi.
Hlýtur að vera skrítið að vera svona mikil hetja fyrir það eitt að láta eins og ofdekruð og illa upp alin gelgja;)

Skrítið en einhverra hluta vegna er þetta bara asnalega töff.

Plan kvöldins: Kvikmyndin Capote...

Lifið heil

miðvikudagur, mars 15, 2006

Komm-bakkið



Össöss...pásan endist ekki einu sinni í viku! (Mínir nánustu höfðu enga trú á mér)

Ég ákvað að gera þetta ekki svona formlegt og kalla þetta ekki pásu...nú blogga ég frekar bara þegar mér hentar.
Pásan var í raun bara gerð til að sýna TJ fram á að ég væri ekki háð þessu blogg-bloggi.
Gjess hís ræt:/

Önnur ástæða fyrir því að ég ætla ekki að hætta að blogga ( er greinilega búin að hugsa þetta lengi) er sú að ég verð frekar svekkt þegar fólk hættir að blogga(svona formlega) því maður er nottlega að lesa þessar síður.
Það er eins og mogginn myndi skrifa í blaðinu á morgun" við erum hættir essu...þetta er seinasta útgáfa Moggans". Það er ekki hægt að bregðast fólki svona!!

Svo er þriðja ástæðan sú að það styttist í að ég fari að halda af landi brott og ekki hef ég efni á að hringja í alla og segja þeim tilgangslausu fréttir dagsins. Ég get alveg eins sparað nokkra aura og haldið lífi í þessari blogg elsku.

Og auðvitað ástæðan: "Im not a quitter!"

Jæja gott fólk haldið bara áfram að heimsækja síðuna.....annars er engin ástæða fyrir skrifum...nema þá fyrir sjálfa mig!

mánudagur, mars 13, 2006

Sma blogg-pasa!



Ég nenni ekki að blogga meira í bili...kem aftur þegar ég hef e-ð spennandi að skrifa um

laugardagur, mars 11, 2006

jæja...

...hætt að vera brjáluð.

Helgin byrjaði vel. Þessi fína árhátíð á fimmtudagskvöldið. Maður getur eiginlega sagt að þessi árshátíð hafi varað ansi lengi hjá mér þar sem ég reis ekki heil úr rekkju nema ca. einum og hálfum sólahring seinna.
Þetta voru frekar leiðinleg "veikindi"...en ég meina þetta var líka seinasta árshátíð mín sem nemandi K.H.Í.

Helgin fer í skólavinnu (þar sem föstudagurinn var mjög afkastalítlill) og afslöppun...maður þarf nú að jafna sig;)
-en kannski maður leyfi sér að kíkja aðeins í smáralindina eða eitthvað sniðugt...

gúten helgí!

miðvikudagur, mars 08, 2006

snar brjaluð!

Íslenkir háskólar eru að missa allt niður um sig!!
Ég á ekki til orð yfir hallærislegum vinnubrögðum gagnvart útskriftanemum.

Ég átti að upphaflega að útskrifast 10. júní 2006. Voða gaman!
Það var vandlega merkt inn í skóladagbókin sem allir nemendur fengu frá skólanum í upphafi skólaárs.

Í janúar er allt í einu sendur póstur til nemenda um að K.H.Í ætli að spara nokkra seðla og nota okkur sem upphitunaratriði fyrir útskrift háskóla íslands þann 24.júní. Fólk mótmælti en skólinn lét það sem vind um eyru þjóta.
Bömmer...en víst lítið við því að gera.

Ég ákvað að mæta þá ekki í mína útskrift heldur nota bara útskrift TJ þann 27.maí sem minn dag.

Í dag kom svo bréf frá L.H.Í. að þeir ætli að færa útskriftina fram til 24.júní sem er miðvikudagur.
Útskriftin á að vera milli 16 og 18 í Borgarleikhúsinu.

Það er óþolandi....að tveir háskólar hér á þessu skeri geti ekki haldið sig við settar dagsetningar.

Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að ég nenni ekki að útskrifast.....þetta er bara vesin hvort sem er!!

GRRRRR!!!

Árshatið

K.H.Í. heldur árhátíð sína annaðkvöld á Broadway.

Á Móti Sól og Gullfoss og Geysir ætla að leika fyrir dansi...matseðillinn verður ábyggilega svipaður þeim sem maður fékk á menntaskólaböllunum hérna í denn.

Þó að ég sé orðin nett leið á Broadway ætla ég auðvitað að skella mér því að ég hef á tilfinningunni að þetta verði síðasta skiptið sem ég muni skemmta mér árhátíðlega í því pleisi.
Spennan fyrir þessu er ekki gífurleg en ég er viss um að eftir að ég kem úr klippingu hjá mömmu Guðrúnar á morgun...treysti á hana;)...auk þess er ég líka búin að bíða eftir að komast í klippingu 4eva

þriðjudagur, mars 07, 2006

Le scent du Wisteria



Orðið á götunni er að eiginkonurnar á Wisteria Lane ætli að senda frá sér ilmvatn...það er nýja æðið í Hollywood.
Hinn aðþrengdi ilmur á víst að koma á markað seinni hluta ársins.

Það verður nú spennandi að sjá og finna hverskonar ilm vinkonur mínar velja að láta frá sér:)

sunnudagur, mars 05, 2006

Minnisleysi eða bara ansi omannglögg?

ég er alveg rosaleg.....ég hef aldrei viljað viðurkenna að ég væri ómannglögg...en verð víst að játa mig sigraða.

...ég var að vinna í gær( laugardag) og á miðri vaktinni koma inn strákur og stelpa til að kaupa blóm.
Ég horfi tvisvar á strákinn því mér finnst ég kannski einhversstaðar hafa séð hann áður...en andlitið sagði mér ekker svo ég hélt ég hefði bara séð hann í sjónvarpinu eða að hann kannski hafi verslað hjá okkur áður. Ég þekkti hann amk. ekki snitti.

Svo segir hann við mig eftir smá stund: "hef ég ekki komið í mat til þín?". Mín fyrstu viðbrögð voru að það hljómaði hátt "what?" í hausnum á mér. Þegar hann sá engin viðbrögð hélt hann áfram vandræðalega "já í Köben...það er nú orðið svoldið síðan".
Heyrðu þá kveikir mín...jújú...þessi maður hafði víst snætt einhvern kvöldmat heima hjá mér í Köben ásamt tveimur vinkonum mínum. Hann kom sem sagt með þeim og við skemmtum okkur öll vel það kvöldið...gott ef við skelltum okkur ekki bara á djammið eftir mat.

Þetta var vandræðalegt en samt ekki óyfirstíganlega vandræðalegt. Ég afsakaði bara með að ég væri ómannglögg...þó mér finnist ég ekki vera það.
En það sem er vandræðalegt við þetta er að fyrir einu og hálfu ári síðan kom þessi sami strákur upp að mér í búð í smáralindinni og heilsaði mér og byrjaði að spjalla. Ég vissi heldur EKKERT hver hann var þá. TJ kom labbandi að okkur og stráksi byrjaði að spjalla við hann og TJ svaraði eins og þeir væru mestu mátar. Það var bara ég sem var algerlega í myrkrinu í þessu samtali. Þegar við fórum út spurði ég TJ hver þetta eiginlega hefði verið!!

Ég skammast mín ennþá fyrir þetta...hvernig er þetta hægt!!!

mánudagur, febrúar 27, 2006

Þa er það opinbert...

Ekki laust við að einhverjir sperri upp augun við svona fyrirsögn;)

Við vorum s.s. rétt í þessu að panta okkur ONE WAY miða til Köben þann 4.júní 2006!

Þá munum við herja á Danmörku í óákveðin tíma þar til annað verður ákveðið.
En sannir íslendingar snúa alltaf einhverntíman aftur....og ég hef ávallt litið á mig sem einn slíkann. Say no more!

Langaði bara að deila þessu með ykkur núna því það er líklegt að ég verði búin að gleyma þessu á morgun.

Svo held ég að ég verði að gefa Íslandi stig fyrir einstaka veðurblíðu þennan mánudaginn.

eðall



Ég held ég verði bara að viðurkenna að ég sé forfallinn Garfield aðdáðandi.
Ég man ennþá ég þegar ég keypti mína fyrstu (og því miður einu) Garfield bók þegar ég var 9 ára in Namibíunni....
-það var stór stund fyrir litlu mig!

otrulega fin helgi!




Ég náði að gera allt sem ég ætlaði mér þessa stór fínu helgi fyrir utan að baka bollur.

Því verður reddað seinnipartinn með amk. einni framandi bakaríisbollu ásamt þessum klassísku!

Gleðilegan bolludag kæru sætabrauðsaðdáðendur:)

föstudagur, febrúar 24, 2006

Happy friday:)

Komin þessi líka yndislega vinnulausa helgi.
Plan:
-dandalast aðeins í miðbænum
-bruna upp í bústað (Héðinsholtið fræga)=góður matur,fjölskylda og potttur!
-bruna í bæinn
-tónleikar með Pharcyde
-baka bollur fyrir bolludaginn
-hrista sig í tíma nr.tvö af funk freestyle dansi
-slaka!!

Í gær var top secret fundur hjá vatnaliljunum og það lítur út fyrir að hin svakalega "sumarbústaðarferð vatnaliljanna" sé að verða að veruleika;)
-who would have thought...hehe
Dröfn mín þú verður nú að fara að láta sjá þig bráðum...Birna er alltaf með súkkulaði köku frá jóa Fel á boðstólnum. Þú getur ekki látið hana framhjá þér fara nema visst mörgum sinnum;)

Góða helgi allasammen

þriðjudagur, febrúar 21, 2006

Hversu sorglegur þriðjudagur...

....rigning og þungskýjað!

Fyrirutan silfursmíði tímann minn í morgun hef ég haldið mig ansi vel innan dyra í dag...þá helst undir sæng.

Það er ekki hundi út sigandi í þetta veður.

Hildz ætlar að gera heiðarlega tilraun til að hrista sig svoldið vel í kvöld þar sem við ætlum nokkrar saman að mæta á ee-ð freestyle-funk námskeið í Kramhúsinu. Ég er viss um að þetta verði ansi skrautlegt þar sem einungis framhaldsnámskeið var í boði.....fyrir okkur byrjendurna:)

Wish me luck!

laugardagur, febrúar 18, 2006

Til hamingju Island!!

Eurovision í maí verður hillarious. Geeeikt skiluru!

Verður gaman að sjá hvort að lagið verður "snurfusað" e-ð fyrir keppnina (eins og Garðar Thor sagði)

föstudagur, febrúar 17, 2006

rökrett hugsun

Nooooooooooooo

Æ mig auman!!

Tekið af Mbl.is:

"Varað við tölvuormi sem ræðst á Apple-tölvur
Notendur Macintosh-tölva eða „Makkanotendur“, eins og þeir eru jafnan kallaðir, hafa verið hvattir til þess að vera á varðbergi gagnvart fyrstu tölvuveirunni sem ætlað er að herja á Apple-tölvur. Umrædd veira, sem kallast „Leap-A“, reynir að dreifa sér í gegnum iChat samskiptaforrit Apple.

Tölvuormurinn dulbýr sig sem myndir af tölvukerfinu Leopard, sem er væntanlegt á Apple, og stelur hann nafnalistum ef honum er hlaðið inn á tölvuna.

Veiruvarnafyrirtæki segja að „Leap-A“ hafi ekki dreift sér víða og ólíklegt þykir að margir Makkanotendur lendi í því að fá tölvuorminn inn á sína tölvu.

Fréttavefur BBC greindi frá þessu."

Konudags-craze

Jæja það er komin helgi....
...konudagshelgi (ATH. sunnundag).

Mín svo heppin að vera að vinna.
Karlar kaupið e-ð annað en blóm...við viljum miklu frekar dekur, e-ð eigulegt eða bara koss!!

Vona að ég sleppi lifandi frá þessum degi...

Góða helgi!

þriðjudagur, febrúar 14, 2006

Happy Valintines..;)




Ég er í staðsett himnaríki akkurat núna...var að koma úr nuddi (nei ekki valintines gjöf;) )
Þetta fólk á skilið medalíu fyrir að velja þessa starfsgrein!

TJ skilaði BA ritgerð í dag...héldum upp á það. Nú á hann bara eftir BA verkefni.

Þetta er nóg í bili...er farin í mat hjá uppáhalds kokknum mínum = moms

sunnudagur, febrúar 12, 2006

Ég þyrfti algjörlega að eiga svona!!!



Myndir segja meir en þúsund orð

Total-hiti í útilegunum í sumar/haust/vor!!

föstudagur, febrúar 10, 2006

Töff töff töff



Keypti mér svona líka gómsæta marsipan Silvíu Nótt í dag.
Maður gat líka fengið Birgittu Haukdal en hún virtist seljast frekar illa miðað við Silvíuna;)

fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Illu er best af lokið...

...segi svona þetta kítl og klukk er bara stemmning ef maður hefur tíma. Reynda er það kannski gagnlegast fyrir mann sjálfann að þurfa aðeins að "go back in time" til að svara spurningunum;)

4 störf sem ég hef unnið við um ævina:
-Blómakona..blómabindari...blómaafgreiðslukona(call it what u want)
-Leikskólakona
-Pökkunarvinna í útlöndum(never again)
-Starfsmaður í gulri og bleikri stórverslun kennd við grís( maður verður nú að vera stolt af fyrsta jobbinu)

4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur og aftur...
-pride n predjudice (ég veit...en ég fíla svona sögur)
-úff þessi er erfið þar sem ég gleymi bíómyndatitlum eins og skot ef ég hef bara séð þær einu sinni.
Þeir sem þekkja mig vita líklegast hvers vegna ég á við þetta vandamál að stríða;)

4 staðir sem ég hef búið á:
-Reykjavík, westside!
-København, Danmark
-Swakopmund, Namibia
-á hólnum í 105 Reykjavík
(-já og líka Siglufjörður)

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:
-Simpson
-Family guy
-Will og Grace
-Desperate Housewives
-og reyndar margir fleiri

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
-Portugal, Lisboa
-Mallorca, Palma
-Krít, Hania
-Túnis, Hammamet

4 síður sem ég skoða daglega (fyrir utan blogg):
-Mbl.is
-Ekstrabladet.dk (ansi mikið upp á síðkastið)
-Khi.is
-Bigperk.com

4 matarkyns sem ég held upp á:
-Grjónó (sem mamma gerir)
-nánast all mexicanfood
-nánast all italian food
-grænmetisréttirnir okkar TJ

4 bækur sem ég les oft:(úff, er nú ekki vön að lesa sömu bækurnar mörgum sinnum!)
-1000 vegetarian recepies
-kökubók Hagkaupa
-the acryl artists bible
-hmmm svo gæti ég ábyggilega lesið Garfield teiknimyndabækur oftar en einu sinni

4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
-í sól og hita á Fiji eða jafnvel hawaii
-í heitapottinum í Neslauginni
-undir sæng með elsku tölvuna mína á nýja rúmborðinu okkar
-í sumó (Héðinsholtinu)

4 bloggarar sem ég klukka:
-Sigga Gyða
-Dröfn
-Guðrún Björk frænka
-Sigurgeir cuz
(-og Troels ef hann nennir)


NJótið vel og eigið góðan dag!

þriðjudagur, febrúar 07, 2006

Ma eg kynna gæludyrið mitt:


my pet!

Folk að missa sig i mugæsing....eða hvað?

Mér líst EKKERT á þetta lið í múslimalöndunum. Fæ illt í magann bara við að hugsa um hverju þetta fólk er að öllum líkindum að koma af stað. Þriðja heimstyrjöldin?!! Kalda-trúar-stríðið?! Varla annað þorskastríð....en þó maður veit ekki...þetta fólk er til alls líklegt.

Ég skil að fólk sé ekki mikið fyrir að það og málefni þeirra(trúarleg eða ekki) séu ekki tekin alvarlega af öðrum hópum.
En samt má alveg e-ð á milli vera. Hvað varð um að sýna skilning og umburðalyndi og að fyrirgefa náunganum? Tilheyra þessi atriði einungis kristinni trú??!!

Við höfum ákveðið að flytja til Köben í sumar. Fólk af þessari trú verður nú bara að taka sig saman í andlitinu og taka við afsökunarbeiðni eins og annað fólk!!! Þetta minnir svoldið á þvera krakka sem þráast við taka einhvern í sát sem hefur skemmt "dótið" þeirra....en samt beðist afsökunar.

Maður er nú bara ansi uggandi um lok þessa máls!!

laugardagur, febrúar 04, 2006

Jurovision

Jæja...loksins fékk ég að heyra út á hvað allt undankeppnar-fárið gekk út á.
Ég verð bara að segja að lagið með Sylvíu Nótt er það eina með einhvern snefil af frumlegheitum af lögunum í þessari keppni.
Lagið er fyndið á ísl/ensku...en ég ímynda mér að sniðugheitin hverfi svoldið ef þetta verður þýtt á al-enskuna.
Sjálf melódían er góð....og manni leiddist ekki á meðan lagið var sungið.

Sendum Sylvíu til "hvar sem keppnin verður haldin í ár". Hún verður fín landkynning...frekar það en gamla góða 15 sætið.

fimmtudagur, febrúar 02, 2006

Januar buinn...

...þá er þessi langi og dimmi mánuður loksins búinn. Það þýðir að útsölurnar eru líka að klárast. Held það sé fátt leiðinlegra (fyrir mitt leiti) en að versla á útsölum. Ég hef ekki þetta baráttueðli sem þarf þegar kemur að því að krækja í bestu kaupin í upphafi útsala. Þannig að þegar ég loksins læt sjá mig í búðum eru öll fötin sem ekki seldust í fyrra og hitt í fyrra hanga eftir á slánum og stundum er meira að segja gömul geymslu lykt af þeim.
Reynslan hefur sýnt mér að útsölubransinn er ekki mín deild...og þar af leiðandi gleðst ég mikið þegar að útsölulokum kemur.

Minn tími mun koma!



(p.s. öllum er velkomið að heilsa upp á mig í blómabúðinni á morgun föstudag...its gonna be a verí LO14O22Ong dei!! já og laugardag líka;)