laugardagur, júlí 12, 2008

Hrói í myndum

Ég var svo heppin að fá óvænt ókeypis armband á Hróa. T.J. hringdi í mig á laugardags eftirmiðdegi og sagði mér að stökkva upp í bílinn og bruna til Hróarskeldu. Sem ég gerði...og náði slatta af tónleikum þrátt fyrir að vera "seint" á ferð (miðað við að hátíðin hófst á fimmtudegi).
Sáum meðal annars Queen Ifrica, Judas Priest, Swollen Members og Neil Young á laugardeginu( ég stjórnaði ekki alveg dagskránni;) Og á sunnudeginum sáum við Sharon Jones and the Dap Kings, ásamt rúsínunum í pylsuendanum Hot Chip og Jay Z (þó ekki saman).

Laugardagur


Sandra og ég í sólinni...


...að hlusta á TJ lýsa einhverjum tónleikunum.


Orange scene fyrir allar stórstjörnurnar.


Röðin til að vera fremst á tónleikunum...þarna er fólk að bíða eftir Neil Young. Röðin við hliðina á er fyrir Chemical Brothers sem byrjuðu mun seinna um kvöldið..samt er fólk byrjað að bíða í röð.


Loksins er byrjað að spila..


..og maaaargir mættir til að hlusta


Neil Young lét "comb over" greiðsluna fjúka og rokkaði.

Sunnudagur


Mikil stemmning á Hot Chip


Penu Chip-strákarnir á sviðinu


Svo kom RIGNINGIN á seinustu tónleikunum.


Ég og Sandra að horfa á JayZ


Mikið dansað og jiggað á JayZ

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

En þú heppin að fá miða á hróa :) Og stórt hrós fyrir myndir! Alltaf gaman að sjá myndir :)

kv. Birna

Nafnlaus sagði...

Man, hefði svo verið til í að jigga með Jay Z!!! Og vá hvað þú ert lík mömmu þinni á síðustu myndinni!
Dröfn

Nafnlaus sagði...

jeij nýtt blogg! i am so happy about that! :D
*öfund* hefði alveg viljað fara frítt á skelduna.. demitt! ég þarf að klípa aðeins í stiftann og segja honum að DK sé málið..

.:Eyjan sagði...

Já stelpur mínar...það er stuð í Danmörkunni á sumrin!!
Ég er að reyna að bæta mig í mynda-innsetningunni til að hvetja aðra til að leika sama leik.

Dröfn...fyndið að þú skulir segja þetta því það vill svo skemmtilega til að hún er einmitt móðir mín;)..múhaha

Nafnlaus sagði...

Hot Chip, Sharon Jones and the Dap Kings, Judas Priest, Swollen Members, Queen Ifrica...etc..

UM HVAÐ ERTU AÐ TALA KONA? ;)

You had me at Neil Young.

Kv. Harpa, greinilega ekki alveg inn í tónlistarbransanum í dag!

Nafnlaus sagði...

gaman samt að fá frían miða, heppin þið og tek undir að gaman að sjá myndir.

tókstu nokkuð þátt í nakta hlaupinu? sá myndir í séð og heyrt og hefði pottþétt tekið þátt hefði ég verið. ég er svo mikið fyrir allt svona sprellerí;)

Kv. HÓ