Hér í Köben er enþá skíííííta kuldi og ég held það breytist bara ekkert til hins betra á næstunni.
Síðan síðasta blogg var skrifað hefur svo sem ekki neitt mikið gerst í Danaveldi.
Ég er bara á fullu í dýragarðinum og hinum og þessum kynningum á verkefninu fyrir hina og þessa kennara. Svo er maður í vinnunni að meika sum dollars....
Við TJ skelltum okkur á tónleika með múm og seabear á mánudaginn var...það var bara kósý og Seabear bandið stóðu sig snilldarlega vel eins og venjulega. Hlemingur gesta á tónleikunum voru að sjálfsögðu íslendingar og hinn helmingurinn voru víst danir og aðrir skandinavar sem höfðu ráfað óvart þarna inn;)
Ég fékk mér nýtt hár í dag og er að venjast...þá sérstaklega gardínunni sem ég fékk mér fyrir augun:)
-friður


3 ummæli:
hey ég var líka að fá mér gardínu fyrir augun. við erum töff gardínur samt, höfum það alveg á hreinu. engar rúmfó druslur;)
kv. harpa gardína.
Fær maður ekki mynd? Ég er líka með svona hálfa gardínu... ;0)
jeiij.. ég fer líka bráðum að fá mér nýtt hár.
í stíl við nýju íbúðina þú skilur? ;)
Skrifa ummæli