laugardagur, september 08, 2007

Jææææja..

..skólinn að byrja, haustlitirnir er farnir að láta sjá sig, hlýjar peysur og húfur aftur komnar í verslanir...og það þýðir að tími bloggsins blómstrar enn á ný!!

Ég gærkvöldi bauð TJ mér á tónleika með Seabear og Benna Hemm Hemm í "Nordatlantenshus" hér í Köben. Þetta "hús" er svokölluð miðstöð fyrir eyjarnar langt norður af Danmörku þ.e. Ísland, Grænland og Færeyjar.....anyway þá voru þetta ágætis tónleikar og þá sérstaklega Seabear.....ég var að sjá B.H.H. bandið í fyrsta skiptið og þekkti ekki beint tónlistina hans og komst að því að þetta er ekki beint minn tebolli...þar sem ég stóð mig að því að hálf dotta í miðju show-i...eða kannski var það bara færeyski bjórinn sem var í boði...mjehe!
Seabear voru í stuði....mæli eindregið með þeim!

Annars er bara einn dagur búinn af skólanum. Þar er tölvutímakennsla í gangi þar sem við erum að læra 3D Max...þrívíddar prógram. (Ímyndið ykkur Ikea-eldhúsplönunar-prógrammið bara mun flóknara) s.s. fín önn framundan...

Annars leggst haustið (með myrkur og kulda) bara vel í mig...(það gerir það yfirleitt þegar stórar hlýjar peysur eru í tísku ;)...og ég er búin að kaupa fullt fullt af kertum til að takast á við dimmuna...þetta verður bara kósí!


Ágætis byrjun

meira seinna

leiter geiter

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

3d studio max vs. ikea planning - "Aðeins" flóknara... ihihi

Gangi þér vel og góða skemmtun í þrívíddinni

Unknown sagði...

Hæ sæta spæta, við erum sko meira en til í að koma á Ísland Danmörk í Köben í Nóvember. Ég fæ ársplan yfir skólann á næstu dögum og vona bara að þetta fitti inn:)

.:Eyjan sagði...

Heyrðu Guðrún Ragna það væri snilld að fá ykkur í fótboltaheimsókn..þetta yrði þá árlegur viðburður;) Þó að Ísland-Danmörk sé í annari deild en Fck-Man. United.

Guðrún frænka..3d-ið gekk bara vel...er enginn pró en get spjarað mig ansi vel í ikea-planaranum..hehe;)