Jæja mín skellti sér í bakstur í dag...tvær smákökusortir, vegna skorts á jólabakstri 2006! Og reyndar henti ég í ofninn einni brauðblöndu sem varð líka ansi vellukkuð (hefði varla getað mislukkast). Þetta var einmitt dönsk brauðblanda, nýkomin á markað hér og er á leið inn á íslenskann markað. Ólíkt öðrum brauðmixum er hún gerð úr líffrænt ræktuðum hráefnum og er ferlega sniðug að því leiti að maður bakar það í pakkningunum. Ótrúlega smart gert...hafið augun opin fyrir
þessu.
Nóg af auglýsingum...veðrið hér í Köben er ekkert til að hrópa húrra fyrir en lofthitalega séð kvarta ég ekkert að ráði...þar sem hitinn hangir í um 10 gráðum.Það er bar rigningin sem er e-ð að pirra mig.
Nokkrar myndir frá ljósmyndanámskeiðinu.


1 ummæli:
eigum við þá e-ð að ræða tólf stiga gaddinn sem var hér í gærkvöldi? nei veistu ég held ekki.
sweet sweet tene.. i miss u!!
Skrifa ummæli