Ég var að horfa á "the day after tomorrow" í gær. Sjæse...hvað ég ætla að fara að vinna á móti gróðurhúsaáhrifunum!
Góð mynd sem fær mann til að finna hversu lítið peð maðurinn í rauninni er...þrátt fyrir að við höldum að við séum svaka bigshot. Við höfum bara ekki roð í ísöld né neitt þessháttar náttúruvesin!
Helgin er vandlega skipulögð vinnuhelgi með innskotsdjammi, chilli, jólahugleiðingum og kannski ferðatösku pökkunarpælingum.
Er búin að ákveða að ef ég eignast ekki börn í framtíðinni ætla ég að minnsta kosti að fá mér hund. Jafnvel eiga bæði!
Sá hundur á að vera svartur eða brúnn labrador og heita e-ð cool...eins og...Snoopy;) Sá eitt svona sætt stykki þegar ég var að vinna í dag og uppfrá því gerði ég þetta plan.... æ get kannski ekki sagt að það sé bara uppfrá þessu....man reyndar þegar ég var að flytja aftur heim til Íslands frá Namibiu þá var sá sem mér þótti al sárast að kveðja og gerði mér mikið kveðju drama út af brúnn labrador sem hét Píla....it obviously goes way back...
Jæja þetta var statement dagsins
Góðahelgigottfólkhafiðiþaðnúgott
Hilds
p.s. 2 dagar í Osló


Engin ummæli:
Skrifa ummæli