Jú jú Hildur eyddi eftirmiðdeginum í að keyra milli dekkjaverkstæða(með pabba;) í leit að loftbóludekkjum!?(þar sem fremri dekkin undir bílnum voru orðin nánast slétt). Nú skuliði bara heyra....loftbóludekk eru eitt að því nýjasta á markaðnum og á víst að vera ferlega effektívt í snjó og frosti en drasl í slabbi og svoleiðins. Það má ekki keyra á þeim á sumrin því þá springa "bubblurnar"! Ja alltaf lærir maður e-ð nýtt...þetta vissi ég sko ekki í morgun þegar ég vaknaði! Enduðum nú samt á því að festa kaup á almennum snjódekkjum...leist heldur ekkert á að dekkin færu að springa eins og sprengiplast úr kassa frá Ikea þegar það færi að hlýna.
Var líka að troða einhverju af jólaskrautinu mínu upp í dag eftir að hafa sótt það ofan í skúffur og poka heima hjá ma&pa. Allt e-ð dót sem maður hefur fengið eða keypt einhversstaðar og ekki notað í langan tíma. Sumt ekki einu sinni séð áður! Serían er komin á svalirnar við undirleik Bjögga Hall og maður fer bara að verða alveg ready fyrir jólin....bara synd að það er ekki einu sinni kominn Desember!
Ég heyrði auglýsingu fyrir Grease leikritið í utvarpinu áðan og viti menn mig langar að fara og sjá herleg heitin. Ætli maður sé að falla í fótspor þjóðarinnar og fíla Birgittu...mja..., eða er það kannski "Drauma" leðurgæjinn...neh svo alls ekki!! Held mig langi bara í þennan grísí-fíling.....
Jæja rúmið kallar...og er farið að vera ansi hávært.
nighty night.....*


Engin ummæli:
Skrifa ummæli