sunnudagur, september 28, 2003

Ágætis Sunnari í dag...með kennslubókum og stærðfræði. DVD gláp í gær...get ekki beðið eftir mánaðamótunum til að geta eytt örlitlum peningi í búðum bæjarins og jafnvel á einhverjum heppnum börum. Hef líka sterka löngun í ljósakort en það verður bara að koma í ljós hvort það verði framkvæmt(maður er jú svo náttúrulega brúnn í útlit...yaha!)
Mig langar að nota tækifærið til að bjóða fólki í heimsókn hvenær sem það vill nema á milli 01 og 06 am..erum samt sveigjanleg ef fólk kemur með sér óskir. Ég ætti að vera löngu búin að bjóða öllum heim að sjá höllina en það er nánast óhugsandi að fá fleiri en 4-5 í einu í stofuna því þá fer að myndast mannmergð. So you see....betra að fólk droppi bara við...kannski hringi á undan svo ég geti náð að töfra fram lúxus veitingar (aka.kexpakka;) eða jafnvel að skella í einhverja kökuna....(sjáum nu til með það)
Ég hef ákveðið að ef innan 2 mánaða er einhver(ekki þú Dröfn) sem ekki hefur komið í heimsókn verður hinn sami sóttur og neyddur til kökuáts í 2 tíma á nyja sofanum minum.So there...

Gísla er í Danmörku og er komin með blogg...kíkið
Sigga Birna vinkona min i Köben er lika komin med blogg...ymsar skemmtilega pælingar

jæja læra meira.......blogga meira l8ter

Engin ummæli: