mánudagur, desember 31, 2007

Gleðilegt nýtt ár!!!!



Takk fyrir það gamla....!!

mánudagur, desember 24, 2007

fimmtudagur, desember 20, 2007

-á leid heim



vonandi fer ekki svona fyrir jólanum thegar ég flýg heim í kvøld!

Sjáumst!

mánudagur, desember 17, 2007

Afmæliskvedja!

Hún Birna mín á afmæli í dag!
Hér er eitt stykki afmælissøngur frá mér:)



Til hamingju gamla mín!
Sjáumst soon..

föstudagur, desember 14, 2007

Loksins!

Eitt stykki óendanlegt dýragarðsverkefni búið.
Þrátt fyrir mikið verkefnastress að undanförnu hef ég haft tíma til að vera með í stóra jólamarkaðnum í skólanum mínum þar sem kortin mín og merkimiðarnir seldust upp..jeij fyrir mér! Svo hef ég haft pínu lítinn tíma til að jólast, fara í smá jólaboð og svona...mjög næs!
í dag endaði svo dýragarðsverkefnið með sýningu...ég og hópurinn minn vorum á sviðinu fyrir kl.8:30 í morgun með leikþátt og "live size" strút með innbyggðri videovél....já krakkar mínir í skólanum mínum er allt hægt!

Eftir snilldar frammistöðu á sviðinu fór ég beint heim þar sem ég er með hita, kvef og allskonar.....sko mína..þýðir ekkert annað en að klára dæmið...no matter what!

-ég hef svo sem ekki mikið að segja þar sem panodílið hefur áhrif á skrifgetu mína....en ég kem heim eftir minna en viku...þ.e. næsta fimmtudag.

Jólajóla!

miðvikudagur, desember 12, 2007

Stekkjastaur kom fyrstur...jibbí!




ég fékk ekkert í skóinn.
Hvað á það að þýða!!!!

miðvikudagur, desember 05, 2007

Fullt af myndum..

Jólastemmning í Tívolí




Nýja fílahúsið í Zoo...byggingarsvæðið

Fíla húsið fína er teiknað af fræga arkitektnum Norman Foster


The wildest place in town....grrr


Gamla fílahúsið er vinstra megin og nýja risa húsið(sem er að mestu niðurgrafið) er hægra megin.


Hluti af útisvæði fílanna...þarna eiga fílarnir að geta baðað sig eftir að laugin verður fyllt af vatni


Skálinn fyrir Kvígurnar og kálfana, séður innan frá....risa hurðin í endann er út á úti svæði fílanna...


Svona lítur það út á teikningunni....Kvíkurnar og kálfarnir eiga að vera í stóru kúlunni og karlarnir tveir fá minni skálann. Á milli þeirra er rými á nokkrum hæðum sem verður einskonar upplýsingastöð...og svo getur maður kíkt á fílana ef þeir eru inni.

Bland i poka


Danmörk vs. Ísland - ekki besti leikur allra tíma


Skautasvellið sem skellt var upp rétt hjá vinnunni minni


Þessi er yfirleitt á vappi í skrúðgarðinum hjá Frederiksberghave

laugardagur, desember 01, 2007

Jól í Köben

Ég skrapp niður á Strik í dag til að kíkja á jólastemmninguna....big mistake!

Þar þurfti ég að brjóta mér leið í gegnum haf af túristum(danir í miklum minnihluta). En þeir sem eru mest áberandi túristar eru "taratatam.....við".

"Íslendingar í Köben" eru sérstakur þjóðflokkur á Strikinu. Allir hópar/pör af íslendingum eru, samkvæmt þeim sjálfum, EINU íslendingarnir á Strikinu og í öllum búðum þar í kring. Þeir eru hálf heyrnalausir og virðast vera hálfblindir þar sem þeir arga á hvort annað yfir hálfa búðina(þeir virðast ekki geta séð fólkið með því að líta yfir búðina) eða ræða persónuleg mál á hæsta styrk á meðan það er verið að róta í fötum í H&M (afskaplega óþægilegt fyrir okkur hin sem óvart heyrum e-ð sem vildum helst ekki heyra)

....og svo eru þeir allastaðar...og alltaf jafn hissa þegar þeir heyra í öðrum íslendingum (óborganlegur svipur þegar þeir líta undrandi upp og fylgja "íslendingnum" með augunum á meðan þeir ganga framhjá...hnippa svo í förunaut sinn og segja spekingslega "sástu þessi..þetta voru íslendingar".

Ég hef nú ekkert á móti landsmönnum mínum....en ef við ætlum á annað borð að taka yfir Köben þá er vel hægt að gera það á dannaðri hátt..held það sé bara spurning um að kunna sig aðeins:)

Sigurvegari...



Til hamingju Arnie...þú ert sjálfkjörinn sigurvegari bæði vegna dræmrar þátttöku og vegna afburðar ljótra hluta sem þú lagðir til í keppnina...þú færð þennan forláta óaðlaðandi bikar til marks um sigur þinn....your name is on there somewhere;)

Arna lengi lifi!!

miðvikudagur, nóvember 28, 2007

úffpúff...



OJ..hver kaupir eiginlega svona...og þá betri spurning hver býr eiginlega til svona...nei sko really?

OK nú hefst formlega "ljótu hluta" keppni á vegum bloggsins? Sá sem finnur ljótast og mest tacky hlutinn á netinu vinnur.
Setjið link á hlutinn í kommentin...

Jææææja..

Hér í Köben er enþá skíííííta kuldi og ég held það breytist bara ekkert til hins betra á næstunni.

Síðan síðasta blogg var skrifað hefur svo sem ekki neitt mikið gerst í Danaveldi.

Ég er bara á fullu í dýragarðinum og hinum og þessum kynningum á verkefninu fyrir hina og þessa kennara. Svo er maður í vinnunni að meika sum dollars....

Við TJ skelltum okkur á tónleika með múm og seabear á mánudaginn var...það var bara kósý og Seabear bandið stóðu sig snilldarlega vel eins og venjulega. Hlemingur gesta á tónleikunum voru að sjálfsögðu íslendingar og hinn helmingurinn voru víst danir og aðrir skandinavar sem höfðu ráfað óvart þarna inn;)

Ég fékk mér nýtt hár í dag og er að venjast...þá sérstaklega gardínunni sem ég fékk mér fyrir augun:)

-friður

fimmtudagur, nóvember 22, 2007

Danmørk vs. Ísland- smá fótboltablogg!




tja...hvad skal segja...úrslitin komu svo sem ekki á óvart.
En thad var gaman ad sjá leikinn ásamt 15.000 ødrum áhorfendum.
Vid settum vallarmet í áhorfendafjølda. Færri áhorfendur hafa ekki verid á landsleik í mørg mørg ár!
Thad er samt ekki áhugaleysi dana á íslenska landslidinu um ad kenna heldur arfa slakri frammistødu danska landslidslins upp á sídkastid.
Oh well...en thetta var ágætis skemmtun.

22 nóv...ertu ad grínast hvad tíminn flýgur áfram...jólaskrautid upp eftir smá stund!!
Hvenær er annars fyrsti sunnudagur í adventu??

þriðjudagur, nóvember 20, 2007

Ferð í dýragarðinn


ísbjörninn í öllu sínu veldi...


Brúnir birnir...þeir sáu starsfsmann á vappi og héldu að hann væri að koma með mat...


þessi björn sá líka starfsmanninn og ákvað að teygja aðeins úr sér til að sjá betur hvort það væri matur á leiðinni....mér fannst þetta svoldið skerí þar sem hann er risa stór og var alls ekki langt frá handriðinu sem við stóðum við....


Flóðhestarnir voru blómlegir og vel í holdum:)


How cute are they!!


Það var rosa gaman að kíkja í "dýró"...fer aftur á föstudaginn í skoðunarferð með guide sem ætlar að sýna okkur nýja fílahúsið sem er verið að byggja...teiknað af arkitektnum Norman Foster...verður svaka flott....
Kannski koma fleiri myndir þá.

Dýrslegar kveðjur frá Köben

föstudagur, nóvember 16, 2007

meira hihi...

Wulffmorgenthaler.com

Wulffmorgenthaler.com

Wulffmorgenthaler.com

fimmtudagur, nóvember 15, 2007

Hihi




-meira á wulfmorgenthaler.com

miðvikudagur, nóvember 14, 2007

jæææja...



ég get sagt ykkur það að það er barasta drullu kalt hér í Köben..það er sko hollast að vera heima hjá sér í svona veðri!

Annars hef ég tekið eftir að það líður nú svoldið langt á milli blogga á þessari síðu og finnst það frekar slöpp frammistaða hjá eigandanum. Það er ekki eins og hún hafi haft miiiiikið að gera í skólanum(og það mun ekki breytast fyrr en eftir 18 des) og það er heldur ekki eins og hún hafi verið með fullt af gestum upp á síðkastið sem hún eyddi frekar tíma sínum í....neeeeeh...ég held þetta sé bara leti!!

Það var rosa stuð hjá okkur Dröfn meðan hún var hér í heimsókn. Hún hagaði sér einkar vel og var fyrirmyndar gestur...get vel mælt með að fólk bjóði henni að gista hjá sér við tækifæri!!:) Hún var líka mjööög fagmannleg í verslun sinni og get ég sagt að ég hafi lært af prófessional "verslara" eftir að hafa eytt skemmtilegum quality stundum með henni í hinum ýmsu búðum og verslunarmiðstöðvum í bænum. Við skelltum okkur líka út á lífið og enduðum á kokteilbar. það sem hitt og þetta var smakkað....daguinn eftir var ekki góður...fyrir mig...en Dröfn var hress.

En ég var að byrja nýtt verkefni í skólanum þar sem við eigum að vinna að upplifunarhönnun fyrir Zooologoiskhave hér í Köben sem þýðir ófáar ferðirnar í dýragarðinn til kanna aðstæður og research-a svoldið. Jibbí!!
En það þýðir líka það að bloggin mín verða að öllum líkindum færri fram að jólum....eða amk í málsgreinaformi. Sjáum til.

Man ekki meir í bili....hafið það nú gott
HH

miðvikudagur, nóvember 07, 2007

Nóg ad gera..

Edda vinkona var í heimsókn sídustu helgi og var voda stud hjá okkur!
Drøfn vinkona kemur í dag til mín og verdur fram yfir helgi..og verdur studid varla minna!!

Good times...!

sunnudagur, nóvember 04, 2007