sunnudagur, júlí 09, 2006

Heyja Svergie...






Skelltum okkur til Svíþjóðar á laugardaginn til að skoða nýja sumarbústað sem frændi TJ, kona hans og sonurinn Adam voru að kaupa.
Svíþjóð er ótrúlega kósý land. Fullt af trjám í ævintýralegum stórum skógum....það komu upp margar góðar minningar frá sögunum um börnin í Ólátagarði, Emil í Kattholti og fleiri þegar maður keyrði um sveitina og sá krúttilegu bóndabæina.

Stoppuðum stuttlega í Malmö á leiðinni heim. Röltum um miðbæinn og fengum okkar Makka Dónalds kvöldmat. Heimsborgarlegt?...já ég held það nú.

miðvikudagur, júlí 05, 2006

Of heitt!!



Þó að ég sé mjög hrifin af hita og sól þá hef ég mín takmörk. Nú er komið of mikið af því góða. ég segi stopp við 30 gráður...úff!
Ég er komin í skjól inni í herbergi með viftu og læti. Þrátt fyrir hitann tókst mér að mála einn vegg í stofunni áður en ég gafst upp í dag. Go me!

Í kvöld ætla ég að skella mér á tónleika með gömlu góðu Hjálmum sem verða í salnum í Kristjaníu. Orðið á götunni er að íslendingar ætli að sækja tónleikana í bílfarma-magni. Alltaf gott að fara til útlanda til að sjá böndin sem venjulega spila heima;)

Nú sem komið er ganga framkvæmdirnarí íbúðinni ansi vel. Það er búið að steypa grunninn að baðherberginu og svo verða vonandi komnir veggir í næstu viku....

Hafið gott mín kæru...ég ætla að reyna að kæla mig aðeins...nú væri gott að fá örlitla rigninu ja eða bara golu:)

föstudagur, júní 30, 2006

ibuðar myndir ( Athugið...a framkvæmdarstigi!)


-baðherbergið okkar verður "compact" en mjög töff...við hugsuðum smátt þegar kom að gólffletinum( stálplöturnar afmarka stærðina;)


- Vinnuherbergið okkar...skrifstofa eða svoleiðins.


-útsýnið út um eldhús gluggann. Við búum á fyrstu og hálfri hæð.

Það var oskað eftir ibuðarmyndum so....


Elhússvæðið- einn daginn mun meistarakokkurinn ég elda þarna. Hurðin er inn í svefnherbergið.


-annað sjónarhorn á eldhúsið. Þarna í innskotinu verður ofn og helluborð.


-ekkert betra en að hafa svefnherbergið fullt af bananakössum! Maður sefur svo vel vitandi af þeim!


-Stofan...svoldið dimm mynd...en hún á eftir að vera stór glæsileg með græna sófanum okkar.


-gangur og séð inn í eldhús.....og inn í tilvonandi baðherbergi.

2 myndir fra Sankt Hans kvöldi i Strand Parkinu


fimmtudagur, júní 29, 2006

Nu fer boltinn ad rulla...



Kl. 0700 i fyrramalid stendur svona gaur fyrir utan hja okkur. Mega hress og tilbuinn til ad takast a vid pipulagnirnar okkar og klosettrørin.
Svona lid er ekki af thessum heimi. Thad ættu ad vera løg um ad enginn megi byrja ad vinna fyrir kl.8...og helst 9!!

Hver tharf ad vera vøknud til ad hleypa hressa manninum inn?
-Ju audvitad ungfru Morgungeisli!!

Hvad leggur madur ekki a sig til ad halda i idnadarmenn thessa dagana!!Iss piss!

mánudagur, júní 26, 2006

Fyrsta stell-söfnunin er hafin!




...þó maður sé nú fyrir löngu komin á hinn almenna stell-söfnunar aldur þá hef ég ekki fyrr talið mig vera nógu gamla né þroskaða til þess að byrja að safna svona dóteríi.
Í útskriftargjöf frá honum TJ mínum fékk ég fyrsta alvöru stell-gripinn sem gerir það að verkum að ég get ekki frestað þessu lengur. Ég byrja s.s. á dessert/súpu skálum....(ég hef ekki alveg sans fyrir hvað er nákvæmlega notað í hvað). Ekki hef ég valið ódýrasta stellið því einn matardiskur úr þessu Royal Copenhagen stelli kostar víst yfir 4000.

En jæja ég er greinilega að eldast og (vonandi samhliða því) þroskast!;)

ástin min....



...er í viðgerð. Þó ekkert alvarlegt..en var samt mikilvægt að laga áður en ábyrgðin rann út.
Ég fæ hana vonandi aftur í hendur í lok næstu viku. Þetta takmarkar að sjálfsögðu net-aðgang minn nema þegar mér tekst að plata TJ til lána mér sína tölvu....tja..eins og núna.

laugardagur, júní 24, 2006

Utskriftardagurinn stori....

....án mín!

Í dag "fæ" ég formlega afhent plögg þess efnis að ég sé nú orðin fullgildur grunnskólakennari.
Óska ég mér til hamingju með það!
Ég óska líka samnemendum mínum til hamningju með daginn.

Birna til hamningu með hann Andra þinn....og ég vil gefa þér gott ráð: taktu með þér nesti og kodda því að brautskrá 957 tekur drjúgan tíma:)


Bestu útskriftarkveðjur
Fröken Hildz

fimmtudagur, júní 22, 2006

Nyjir linkar

ég bætti inn inn nokkrum linkum inn á síðuna.

Langar sérstaklega að benda á Baghdad Burning sem er blogg þar sem írönsk stelpa/kona sem býr í Baghdad lýsir daglegu lífi í þessari stríðahrjáðu borg. Ótrúlega upplýsandi að lesa um hvernig venjulegt fólk upplifir ástandið þarna...

Annar er allt það fína að frétta af okkur. Íbúðarframkvæmdir halda áfram og ganga ágætlega.
Á morgun er Sankt Hans Aften hér í Danmörku...þá fara allir um kvöldið og horfa á bál einhversstaðar. Við tvö höfum ákveðið að fara út á Amager strönd þar sem er hið fínasta strand-park. Við ætlum að grilla og hafa það næs með skemmtilegu fólki og góðri tónlist...vona bara að það rigni ekki eins og í dag.

Góða helgi
kveðja frá moi:)

þriðjudagur, júní 20, 2006

Little ball of joy:)




Skemmtilegur leikur hjá Englandi og Svíþjóð.....Svíþjóð átti skilið að vinna þeir léku svo helv... vel í seinni hálfleik...Beckham og co. voru alls ekki að standa sig!

Annars er ég að fylgjast svona "semi" vel með HM....við erum svo busy í íbúðinni og þar er ekkert sjónvarp ennþá..en ég reyni að horfa á áhugaverðustu leikina (að mínu mati).

Fótbolti er ágætis afþreyging þó hann sé nú ekki lífsnauðsynlegur greyið:)

mánudagur, júní 19, 2006

Nokkrar random myndir i viðbot



Örfaar "random" myndir fra seinustu viku







-Húsin hjá þeim sem við höfum heimsótt í fjölskyldu TJ.
-Hundarnir...Emil og Gríma...voða krútt
-TJ slæst við dagblað í smá roki
-Alveg ótrúlega sniðug laus fyrir lítil baðherbergi....baðið er byggt undir tröppurnar upp á næstu hæð! Mér fannst þetta alger snilld og rosa kósý (heima hjá guðforleldrum TJ).

laugardagur, júní 17, 2006

Gleðilegan þjóðhátíðardag



Vonandi hafiði haft það gott í dag og gert eitthvað "þjóðlegt".
ég var með stór plön um að halda upp á daginn ásamt stórum hóp íslendinga í Danmörku á Amager ströndinni en kom væg flensa, slappleiki og hiti í veg fyrir stuðið...en eins og maður segir þá gengur bara betur næst. Ég verð bara að bíða þanga til á næsta ári með að heyra ræðu Svarars Gestssonar,kaupa samlokur með hangikjöti og harðfisk við undirleik íslendingakórsins....þetta verður löng bið;)

Vonandi rigndi smá á ykkur þarna heima í dag...það er enginn almennilegur sautjándi án smá úrhellis(og helst roki líka;)

föstudagur, júní 16, 2006

Skemmtilegt nafn

Sá þetta nafn í íþróttafréttunum.....ef þessi fótboltamaður tæki upp á því að flytja til Íslandsins góða kæmi vafalaust upp fjöldinn allur af skemmtilegum misskilningi....hahaha...Herra Bakari Kona!!

Ef þið viljið sjá þetta sjálf:
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1207857

fimmtudagur, júní 15, 2006

Ammmmælisdagur



Í dag (15. júnó) eru 19 ár síðan mín kæra uppáhalds og eina systir Sigga Gyða fæddist....innilegar hamingjuóskir frá Köben!!
Vonandi hefur þér tekist að skemmta þér vel í dag og njóta dagsins þrátt fyrir að við gleðigjafarnir séum fjarri góðu gamni á þessum sérstaka degi.

Ammmmmmmmæliskveðjur!!

miðvikudagur, júní 14, 2006

Verlsað og krusað i Kbh.

Hófum daginn á að fjárfesta í 2 sófum. Geri aðrir betur...við vorum rosa ánægð með báða tvo í dag en fáum þá fyrst heimsenda 10 júlí...vegna framkvæmdanna. Vonandi fílum við þá jafn mikið í júlí og við gerum í júní!;)
Við versluðum þá í búð sem heitir Ilva og er risastór...svipað verð og í Ikea en búðin er bara miklu flottari. Svo verður maður jú að kaupa e-ð annað en gamla góða Ikea dótið öðru hverju.

Móðirin var sótt í dag og var keyrt í hinar ýmsu verslunarmiðstöðvar, tekinn rúntur um aðal svæðin, íbúðin (vinnusvæðið) okkar sýnd og fleira skemmtó...
Þar sem ekki náðist nægileg verslun í dag verður tekin fyrir powershopping á morgun (flugið hennar er annaðkvöld). Seinni partinn á morgun fáum við svo alla kassana okkar úr skipasendingunni senda í íbúðina. Þá fæ ég loksins restina af fötunum mínum. Skrítið hvað ein ferðataska með fötum dugar skammt. Eitt pils er sko ekki nóg í 25 gráðu hita!

Í dag keypti ég mér líka skipulags"kalender". Svona litla bók með einni síðu fyrir hvern dag ársins. Nú get ég formlega tekið við heimsóknar-pöntunum, þvi allar pantanir sem fara fram munnlega munu gleymast. Ég get nánast garanterað það..svo munið að láta mig punkta það hjá mér!

mánudagur, júní 12, 2006

Frekar fyndið...hehe

Hundarassa-haldarinn!!



Huggulegt fyrir viskustykkið!!
Haha!!

sunnudagur, júní 11, 2006

Feeling hot hot hot

Í dag var um og ábyggilega yfir 28 gráðu hiti....mjög mjög heitt og nánast logn í borginni sem gerði hitann ennþá meira áberandi...maður þarf sko aðeins að venjast þessu.

Hjólið er að gera góða hluti og er ég dugleg að dáðst að því oft á dag.

Við erum búin að rífa niður fullt í íbúðinni og fara oft á "sorpu" með fullan bíl. Ikea hefur einnig notið návistar okkar TJ og höfum við fundið ýmislegt gagnlegt. Einnig erum við svo heppin að fullt af búðum hefur ákveðið að vera með útsölu þessa dagana svo við getum gert góð kaup í framkvæmdunum. Skelltum okkur á kvöld útsölu hjá Silvan(=Byko) um daginn og keyptum tvær þykkar 3 metra langar gegnheilar eikar borðplötur fyrir eldhúsið á 2000 danskar(kannski ca.=27.000). Okkkur fannst við vera að gera þvílík reyfarakaup.

Nú nenni ég ekki að skrifa meira þar sem ég er orðin svaka þreytt.

Gleðilegan mánudag (komin vika frá því við fórum út....öss ferlega líður þetta hratt)

föstudagur, júní 09, 2006

Simvæddur islendingur i Köben

Loksins hefur mér tekist að ná mér í forláta gsm númer hér úti....var eitthvert vesin á því um daginn þar sem ég ég var ekki komin inn í kerfið hjá dönunum(þjóðskrá).
Nýja númerið mitt er (+45 eða 0045) 20774630

Hitatölurnar hér eru á hraðri leið upp á við og er talað um yfir 25 stiga hita um helgina...ég kvarta ekki.
Móðir mín mætir svo fljótlega á svæðið..hún er á leið á einhverskonar ráðstefnu hér í borg í næstu viku og ætla ég að stela mér smá tíma hjá henni til að drekka einn kaffibolla eða svo...jafnvel sína henni rústirnar af komandi glæsi-íbúð okkar:)

Hef fjárfest í hjóli...mynd kemur fljótlega á netið....ég fer og sæki það á eftir og ætla mér að hjóla eins og brjálæðingur eftir það. Er ótrúlega ánægð með gripinn þetta er ekta ömmu-hjól með körfu og bögglabera og alle græjer....dream come true.

Þarf að þjóta.....kærlig hilsen!

sunnudagur, júní 04, 2006

Hildz talar fra Köben

Jæja þá erum við komin til Köben.
Við erum að reyna að átta okkur á að við séum ekki bara hérna í enn einu fríinu heldur komin til að vera í bili.

Iceland Expr. tókst að klúðra málunum og týna báðum töskunum okkar. Við lentum um hádegið í dag og núna kl.21 höfum við enn ekkert heyrt frá fyrirtækinu með slöppu þjónustuna (þjónustuverið bara lokað og enginn við). Ég sé fram á erfiðan dag á morgun án hreinna fata og alls hins sem ég tróð ofan í tösku. Belive me ég ætla að láta Express heyra það í fyrramálið og þá sérstaklega ef þeir finna ekki töskurnar okkar aftur....grmf! Svo þarf akkurat að vera frídagur á morgun svo maður getur ekki einu sinni skellt sér í búð til að kaupa nauðsynjar.

Takk kærlega til þeirra sem komu í útskriftar/kveðjuboðið á föstudaginn...ferlega gaman að sjá ykkur og gott að geta kvatt ykkur áður en maður flaug af stað. Kærar þakkir fyrir mig og TJ...við vorum hæst ánægð með allt saman.

Ég ætla að reyna að vera dugleg að blogga svo fólk geti aðeins fylgst með því sem við erum að bralla hérna úti. Veðrið lofar góðu og á morgun hefjum við undirbúning að þeim framkvæmdum sem fyrir liggja í íbúðinni okkar...rífa niður veggi, leggja parket, mála og þessháttar stöð!! á meðan framkvæmdunum stendur munum við búa hjá ömmu TJ sem heppilega getur boðið upp á herbergi fyrir okkur.

Meira seinna

Leiter geiters

föstudagur, maí 26, 2006

Living in a box



Pakka pakka jeij!

miðvikudagur, maí 24, 2006

Utskriftardagurinn




Svo stolt af mínum manni!
Héðan í frá er það Mr. Graphic designer:)

mánudagur, maí 22, 2006

Moving on up

Helgin liðin...

-það áttu sér stað massívir flutningar frá mínu kæra æskuheimili Afló. Búslóðin var flutt út á Nes sem mun framan af vera heimili foreldra minna og glæsilegt heimili það.
En skrítin tilfinning er það þó að ókunnugt fólk eigi eftir að leggja í bílastæðið okkar á Afló, opna hurðina með okkar lyklum og sofa í herbergjunum okkar.
En eitt hef ég lært af þessum flutningum, EKKI safna drasli...það á að henda henda henda öllu nema því nauðsynlegasta og persónulegasta.

-Arna var með gleði teiti í tilefni af stúdentstitlinum og var það skemmtilegt mjög. Ég var reyndar lasin og þar af leiðandi ekki partýljón en ég skemmti mér þrátt fyrir það hið besta. Til hamingju aftur Arna mín!

-Ég komst að því að ég stóðst inntökuprófið sem ég fór í í Köben í byrjun maí. Ég fæ samt fyrst svar 28.júlí hvort ég komist inn í skólann...það er svo rosaleg sía inn í þessa stofnun..og ég frk.óþolinmóð hef varla taugar í að bíða svona lengi.

Anywho ca. 2 vikur í brottför....skrítið

föstudagur, maí 19, 2006

Juro-popp



Jæja þá er Silvía "okkar" Næt dottin úr keppni. Verð nú bara að viðurkenna að ég er hálf fegin að þurfa ekki að sjá atriðið aftur á sviði. Hún var alveg ein taugahrúga og söng eftir því greyið. Það getur líka ekki verið annað en erfitt að syngja í karakter á meðan salurinn púar á þig.
Kannski höfum við Íslendingar lært e-ð af þessu.....einkahúmor er einkahúmor og stundum er betra að halda honum þannig.
Hommi og Nammi fá þó stig fyrir diskó-breik-dansinn, hann var hillarious!

Ég veit ekkkert hverjum ég á að halda með á laugardaginn, þar sem Belgía náði heldur ekki kosningu. Það verður amk ekki Lordi...þeir voru nú ekki að gera sig fyrir mig þrátt fyrir mikið lof frá öðrum.

Góða helgi!

þriðjudagur, maí 16, 2006

"eating in the city"

Mín er búin að vera að dugleg í að fara að fara út að borða á "nýja" staði (aka. þar sem ég hef ekki komið áður)

* MARU-japanskur staður rétt hjá Ingólfstorgi.
Ágætis staður með huggulegri stemmningu og nettum bar/koníaksstofu í kjallara. Maturinn ekkert voða spennó, líklega vegna þess að ég tók kjúkling í staðinn fyrir sushi. Japanskur kjúklingur er ekki minn tebolli. Staðurinn er frekar lítill sem er bæði kostur og galli. Komst að því að ég væri fjári lélegur japani. Er of óþolinmóð og klaufsk með prjónana til að geta plummað mig í þeirra samfélagi ásamt því að fíla hvorki heitar tofusúpur né wasaabi sósur.

*ROSSOPOMODORO -ítalskur staður á laugarvegi.
Flott pleis og nóg pláss. Fékk mér hálfmána með fyllingu (skinka og ostur með fancey nafni). Var sátt en fannst hálfmáninn svoldið einmanna þarna einn á hvítum disknum, Hvað varð um að hafa salat með?! ég var sátt en komin með nóg að ostagumsinu í miðjum mána. Ágætis staður en ég verð enginn fastakúnni.

*Hið nýja og endurhannaða KAFFI PARÍS- Austurvelli
Það er búið að breyta lookinu í semi trendy uppastað. Þetta verður sama hang out pleisið fyrir unga krakka en eldri gestir hafa verið hraktir í burtu. Ungu krakkarnir eru bara öllu meiri súkkulaði fólk en áður. Maturinn var barasta ágætur og verðið í góðu lagi. Líklega með ódýrari stöðum bæjarins (tel ég). ég er ekki sátt við þessa "reykingar leyfðar í öðrum helmingi staðarins" þar sem reykurinn er alls staðar hvort sem er. Það var rosa mikið að fólki þarna og greinilegat að margir vilja sína sig og sjá aðra í nýjasta party/matar-pleisi bæjarins.

Jæja þá er útektin búin í bili...og ég held að ég sé líka búin með "út að borða skammt mánaðirns"

mánudagur, maí 15, 2006

Ny Trolla siða

TJ er búinn að gera upp síðuna sína í tilefni af útskriftinni...
Endilega kíkið við:

http://trolli.dk/

Góðar stundir

sunnudagur, maí 14, 2006

Nokkrar myndir fyrir Dröfn i U.S.








Takk fyrir kvöldið skvísos...Kristín María stóð sig með prýði á sínum fyrsta fundi...móðurinni til mikillar gleði:)
Guðrún og Arna ég fékkk enga óhreyfða mynd af ykkur...við tökum fótósession fljótlega:)

laugardagur, maí 13, 2006

Sol og bliða



Summer is here
Þetta eru alveg frábærir sólardagar (þó þeir séu kannski ekki vinsælir hjá prófafólki).
Vonandi heldur þetta bara áfram

miðvikudagur, maí 10, 2006

by the way...

Fyrst ég er búin að skila lokaverkefninu mínu við K.H.Í.....get ég alveg leyft ykkur að kíkja á það.

Enjoy:

http://lokaverkefni.khi.is/v2006/hildhedi/

home sweet home...



Jæja þá er maður komin aftur frá Köben...yfir 20 gráður og yndislegheit.
Þetta var stutt og hröð ferð..tíminn flaug frá mér og sérstaklega þegar ég var að asnast til að fara í vitlausa metró og þurfa að taka næstu tilbaka til að ná réttu(þetta var í stressinu á leið út á flugvöll).
Ég náði samt að spóka mig aðeins á Strikinu og þar í kring áður en ég fór og grillaði með Thilde vinkonu minni í kvöldsólinni.

Allt í allt fín en þreytandi ferð...þar sem ég er ekki svo hrifin af flugvallarheimsóknum með svona stuttu millibili.

laugardagur, maí 06, 2006

Helgin min




Allt að gerast í dag ...TJ með sýningu í dag...út að borða í kvöld...djamm á Vegamótum langt fram á nótt.
Svo fer ég í flug í fyrramálið kl.7:30...sem þýðir rútan kl.5:30 í seinasta lagi...þetta verður erfiður morgun f yours truly.
En ég legg allt þetta á mig til að komast í yfir 20 gráðu hita í Köben. Það er ekki laust við að maður skelli sér á ströndina þegar tækifæri gefst til að fá smá lit á kroppinn!

Hafið það gott um helgina og við sjáumst á þriðjudag( amk. some of you;)

miðvikudagur, maí 03, 2006

Enn ein serian

Varðandi A.N.T.M þá veðja ég á Lisu og/eða Nik.....!!

Einbeitingar örðuleikar...




Eitt próf eftir...á morgun og ég þarf að taka á honum stóra mínum til að halda athyglinni við bækurnar.
Það er svo mikið sem ég þarf að gera um leið og þetta próf er búið á morgun og ég get bara ekki hætt að skipuleggja það.
í huganum er ég "way past that test". Svo skilaði ég lokaverkefninu mínu í gær eftir langat vinnutímabil, sem hefur einnig áhrif á að mig langar bara að vera að gera allt annað núna en sitja við lestur.

Ástæðan fyrir þessu bloggi er í raun bara að ég var að lengja hádegismats-pásununa mína!

þriðjudagur, maí 02, 2006

Hæsta hringekja heims opnuð í Tívolí i Köben




Oh my ég ætla aldrei að prófa þetta...fer upp í 70 km hraða!

Og by the way...B.Ed verkefni in the house...jeij!

sunnudagur, apríl 30, 2006

Handy



Hversu töff væri maður á fótboltaleikjum eða í útilegunni....þægindi eru aukaatriði þegar kemur að lookinu!;)

Flower girk..



Ég lauk mínum seinasta vinnudegi í dag sem formlegur starfsmaður Hlíðablm.
Skrítið? sorlegt? Hmmm...virðist ekki vera búin að átta mig alveg á því ennþá. Fatta þetta seinna....

Á þriðjudag( eftir rúmlega 1 dag) skila ég B.Ed. verkefninu mínu. Big day!
Á fimmtudag fer ég í seinasta prófið mitt sem nemandi Kennó.
Á laugardaginn er opnun útskriftarsýninigar Tj með tilheyrandi gilli.
Á sunnudag skrepp ég til Dk. (kem aftur á þriðjudag)

Þá tekur við málingavinna, möguleg spörslun, pökkun og flutningar út á Nesið
Svo er bara pökkun og flutningar eigin hluta...

-ásamt ýmsu öðru spennó í maí mánuði...

föstudagur, apríl 28, 2006

Afmælis/skirnardagur



Í dag á Harpa formaður Vatnaliljanna 25 ára afmæli.
Vil ég og TJ óska henni til hamingju með árin ásamt því að óska henni fyrirfram til hamingju með nafn dótturinnar (sem verður ábyggilega Hildur!!*wink wink*).

Eigiði nú góðan dag saman lille familie!

miðvikudagur, apríl 26, 2006

Laumulesning



ég er að lesa þessa bók...ekki af því að ég er í megrunarhugleiðingum heldur af því hún er skemmtileg og lærdómsrík. Maður á að drekka nóg af víni borða súkkulaði og ýmislegt annað skemmtilegt...+ tips að heilbrigðu líferni án fyrirhafnar.
Ég kalla þetta laumaulesningu því ég á að vera með 100% ahygli á lokaverkefninu mínu....en leyfi mér að kíkja í þetta áður en ég sofna:)

Mæli með henni!

þriðjudagur, apríl 25, 2006

I am connected




Loksins er ég komin með adsl straum heim til mín eftir um það bil mánaðar bið.
Lúxus líf!

laugardagur, apríl 22, 2006

Paskarnir bunir og gott betur...

...og mín ekki ennþá komin með nettengingu!

Það var nóg að gera hjá mér um páskahátíðina.
Við fengum gesti-bróðir TJ, kona hans og Lára 2 ára dóttir þeirra. Þau bjuggu heima hjá okkur í viku (við vorum á Afló) og kynntust íslandi í fyrsta skipti. Farið var í sumarbústað, Gullfoss/Geysi-ferð, Þingvelli ásamt annari skemmtun.
Ég skilaði lokaverkefninu mínu ( fæ það reyndar aftur eftir fyrstu yfirferð til leiðréttingar).
Páksaeggjaát í hámarki...dauðfegin að páskarnir séu bara einu sinni á ári.
Páskaliljur seldar í blómó.
Málað af krafti í nýja húsinu á Seltjarnarnesi
Og svo ákvað Harpan að fæða glænýtt og ofur krúttilegt stúlkubarn til þessa heims. Enn og aftur til hamingju með litlu dömuna.

Þessa dagan er ég að vesinast í að binda alla lausa enda sem tengjast skólanum. Ritgerðir kláraðar, greinagerðir skrifaðar, málverk fíniseruð og verkefnamöppum skilað.

Allt að gerast....og nú eru bráðum bara tveir mánuðir í brottför Gög og Gokke frá Íslandi.
Time sure flies...

miðvikudagur, apríl 12, 2006

Nu styttist i það!



Já krakkar mínir...nú eru aðeins 3 dagar í súkkulaðibrjálaðið!

Ætli ég verði ekki að viðurkenna að "yours truly" hlakkar ansi mikið til....þó svo að tilhlökkunin sé eilítið frábrugðin því sem maður upplifði í denn.

Þegar ég og Sigrid vorum yngri var þessi dagur alveg óendanlega spennandi. Vöknuðum fyrir allar aldir og snérum öllu húsinu við í leit af súkkulaðieggjunum góðu. Við fylgdum miðum með gátum eða leiðbeiningum sem áttu að leiða okkur að fjársjóðunum. Stundum áttum við í basli með að skilja það sem skrifað var eða teiknað og var þá rokið inn í svefnherbergi foreldranna og tosað í þau þar til lífsmarks varð vart til að fá lausn okkar mála.
Þegar eggin voru fundin (hvort sem það var í þvottavélinni eða undir sófa) voru fyllt stór glös af mjólk og komið sér vel fyrir beint fyrir framan skjáinn.

Þessum páskadagprósess var yfirleitt lokið fyrir kl.08:00


Gleðilega páska allesammen!!

mánudagur, apríl 10, 2006

arans BN

Meira vesinið!!
Erum búin að borga netið í rúma viku núna og routerinn búinn að fara í stillingu hjá Símanum og enn erum við NET-laus.
Lokaverkefnis skil á miðvikudaginn!!
BN er alveg glatað fyrrtæki!!

föstudagur, apríl 07, 2006

Memories



Hér mín yndislega yngri(??) systir á peysufatadegi Kvennó!

Brings back some good memories:)

þriðjudagur, apríl 04, 2006

Draumur?

ég verð að skella á ykkur draumi næturinnar. Mér finnst hann frekar absurd fyndinn.

Ég var s.s. komin með nýja vinnu og var að mæta í fyrsta skiptið. Ég átti að fara að vinna með henni Örnu í þjónustuveri Vodafone.
Ég voða spennt mæti á staðinn en þá er þjónustuversdeildin í húsi sem er eins og Smáralind bara stærri og fullt af búðum og öðrum fyrirtækjum með vinnuaðstöðu líka á staðnum. Ég vafra víst þarna um og skoða allt voða heilluð finn loksins Örnu í einhverjum svona símabás...en hún má ekkert vera að því að tala við mig;) Ég held áfram að vafra um í leit að einhverju eða einhverjum og gleymi mér aftur í búðarrápi. Svo er klukkan allt í einu orðin 18 og allir að fara heim úr vinnunni. Þá hugsaði ég "shit klukkan svona margt, ég hef ekki náð að taka eitt símtal á heilum degi, ég verð ábyggilega rekin"...ég hleyp aftur tilbaka voða bjartýn og ætla bara að redda mér með því að taka nokkur símtöl áður en allir fara. En þá finn ég ekki neinn bás með síma og gefst upp eftir að hafa stefnt lífi og limum í hættu með að stytta mér leið á milli hæða með því að príla e-ð voða.

Það seinasta sem ég man er að ég ætlaði að redda vinnunni með því að segja eitthvað með að fyrsti dagurinn hafi verið svo erfiður af því ég vissi ekkert hvað ég ætti að segja við fólkið í símanum.
- Já mín kæra, góð redding, góður starfsmaður!!

Æ mér fannst þetta svoldið fyndið....nýja vinnan hennar Örnu hlýtur að vera mér mjög hugleikin;)